Í lok hverrar annar taka kennarar saman skriflega skýrslu um hvern áfanga sem þeir kenna og einnig önnur verkefni sem þeir sinna. Uppgjörsskýrslur eru unnar samkvæmt skriflegu skipulagi sem samþykkt er á kennarafundi. Helstu efnisatriði uppgjörsskýrslna vegna kennslu eru þessi: Mat á því hvernig gekk að ná markmiðum áfangans, umfjöllun um kennsluhætti, meðaltöl einkunna, greining á brottfalli, mætingar, mat á 100 tíma reglunni, mat á hópvinnu, miðannarviðtöl, umfjöllun um mat nemenda á áfanganum þær annir sem slíkt mat fer fram og svo heildarmat á áfanganum og tillögur um breytingar. Öllum skýrslum ásamt fylgiritum er skilað á pappírsformi til skólameistara. Faghópar kennara ræða skýrslur hvers fags í lok annar á sérstökum fundum. Skýrslan ásamt kennsluáætlun, samanteknu nemendamatsblaði og lokaprófi er sett í möppu sem er aðgengileg á vinnusvæði kennara.
- Skólanámskrá
- Almennur hluti
- Brautaráætlun og námsframvinda
- Félagslíf
- Fjarnám
- Inntökuskilyrði og fjöldatakmarkanir
- Móttökuáætlun fyrir nemendur af erlendum uppruna
- Nám er vinna
- Námið
- Námsmat
- Nemendaþjónusta & stoðþjónusta
- Reglur um brottvikningu úr námi
- Sjálfsmat
- Skipulag náms
- Skipulag og stjórnun
- Stefna og áætlanir í einstaka málaflokkum
- Vinnuaðstaða og tæki