Skólafundir

Í 9. grein laga um framhaldsskóla er kveðið á um skólafundi.  Skólafundur er fundur allra starfsmanna og nemendaráðs.  Skólafundur er haldinn einu sinni á ári og oftar ef þurfa þykir.  Halda skal skólafund ef þriðjungur starfsmanna eða meirihluti nemenda krefst þess.  Skólameistari boðar fund, skipuleggur hann og stýrir honum.  Á skólafundi eru ræddar stefnumótandi ákvarðanir skólans.  Fundargerðir skólafunda eru lagðar fram í skólanefnd.  Fundargerðir eru prentaðar út ásamt fylgiskjölum og settar í möppu á vinnusvæði starfsmanna.