Kennarafundir

10. grein laga um framhaldsskóla er um kennarafundi.  Kennarafundir fjalla um stefnumörkun í starfi skólans og mál sem varða daglega stjórnun, m.a. námsskipan, kennsluhætti, gerð skólanámskrár, skipulag starfstíma skólans, tilhögun prófa og námsmat.  Skólanefnd, skólameistari og skólaráð geta leitað til kennarafundar um önnur mál.  Kennarafundur kýs fulltrúa í skólaráð og áheyrnarfulltrúa í skólanefnd til árs í senn.  Skólameistari boðar, undirbýr og stýrir kennarafundum.  Kennarafundir eru settir inn í skóladagatal og eru að jafnaði haldnir hálfsmánaðarlega.  Við lok hvorrar annar  er haldinn uppgjörsfundur annarinnar og framhald skólastarfsins rætt. Skólameistari skipuleggur og stýrir kennarafundum.  Fundargerðir eru færðar í tölvu, prentaðar út ásamt fylgiskjölum og settar í möppu á vinnusvæði kennara.