Hvað er markþjálfun?

Lind Völundardóttir Draumland.

Mánudaginn 11. febrúar mun Lind okkar Völundardóttir Draumland halda kynningarfyrirlestur um markþjálfun. Eflaust eru einhverjir sem ekki vita hvað markþjálfun er. Í stuttu máli er markþjálfun bæði fyrir einstaklinga og hópa sem sækjast eftir því að ná ákveðnu markmiði. Þjálfunin fer fram í samtölum við markþjálfa og tekur hvert samtal venjulega um klukkustund. Ástæður og markmið fyrir því að fólk leitar til markþjálfa er mismunandi en markmiðið er alltaf að finna lausn.
Lind er með ACST vottun í markþjálfun frá ICF og stefnir að því að fara í ACC vottun í vor. Við hvetjum alla þá sem vilja kynna sér þetta nánar að koma á kynningarfund Lindar sem verður í fyrirlestrasal Nýheima og hefst klukkan 14:00.

10. bekkur í heimsókn

10. bekkur í heimsókn.

Í dag komu góðir gestir í heimsókn í FAS en það voru nemendur úr 10. bekk Grunnskóla Hornafjarðar sem eru farnir að velta fyrir sér námi að loknum grunnskóla.
Hér tók á móti þeim stór hluti þeirra sem vinna í skólanum og kynntu þær námsleiðir og áherslur sem skólinn býður upp á. Þó að skólinn sé með minni skólum á landinu má segja að námsúrval sé fjölbreytt en um leið einstaklingsmiðað. Sem dæmi um það sem var kynnt í dag var; nám til stúdentsprófs, framhaldsskólabraut, fjallamennskunám, nám á lista- og menningarsviði, nám á íþróttasviði og verknám. Þá var farið yfir þá stoðþjónustu sem skólinn veitir eins og umsjón og störf bæði námsráðgjafa og skólahjúkrunarfræðings. Nemendur í nemendaráði sögðu frá því hvernig félagslíf skólans er byggt upp og að lokinni kynningu gengur þeir með gestunum um húsið.
Í dag klukkan 17 er svo foreldrum nemenda í 10. bekk boðið að koma á fund til að fræðast um hvað skólinn býður upp á. Vonumst við til að sjá sem flesta.

Fuglatalning í febrúar

Eins og margir hafa orðið varir við hefur veður verið fremur hryssingslegt að undanförnu. Það hefur m.a. leitt til þess að nemendahópur í umhverfis- og auðlindafræði hefur þurft að fresta fyrirhuguðum fuglatalningum í Óslandi.
Í gær var þó ákveðið að fara þrátt fyrir óveðursspár og skyldi hópurinn bara klæða sig almennilega. Það var ágæt ákvörðun því miðað við árstíma var töluvert af fugli. Alls sáust 17 tegundir og var heildarfjöldi fugla tæplega 1300. Það kom töluvert á óvart að sjá stóran tjaldahóp sem taldi um 240 fugla. Flestir telja tjaldinn farfugl en það er alltaf töluvert um að fuglinn hafi hér vetursetu. Þá sást í gær strandmávur sem er flækingsfugl á Íslandi.
Líkt og undanfarin ár stjórnar Björn Gísli hjá Fuglaathugunarstöðinni talningum og nú var einnig með í för Lilja frá Náttúrstofu Suðausturlands. Bæði voru dugleg að miðla af reynslu sinni og er það ómetanlegt að hafa aðgang að slíkum sérfræðingum.

[modula id=“9769″]

Nemendur FAS í Tallin

Eins og við sögðum frá fyrir stuttu tekur FAS þátt í erlenda samstarfsverkefninu „Cultural heritage in the context of students’ careers“ eða „Nemendur skapa verkefni byggð á menningararfleið“ eins og við höfum kosið að kalla það á íslensku. Þar er ætlunin að vinna verkefni um menningararfleifð þjóðarinnar og á verkefnið jafnframt að tengjast menningartengdri ferðaþjónustu. Samstarfsskólarnir eru frá Ítalíu, Grikklandi, Eistlandi og Litháen.
Vikuna 21. – 25. janúar var komið að fyrstu heimsókninni. Fjórir nemendur frá FAS ásamt tveimur kennurum fóru til Eistlands og fengust þar við ýmis verkefni. Eitt af því var að hanna lógó fyrir verkefnið.

Í hádeginu á morgun munu nemendur segja frá ferðinni á Nýtorgi. Við hvetjum þá sem vilja heyra meira að koma í Nýheima og hlusta á ferðasöguna. Þeir sem vilja geta fengið sér súpu og salat.

Fyrsta íslenska ADVENT námskeiðinu lokið

ADVENT námskeið á Íslandi.

Þriggja landa menntaverkefnið ADVENT (Adventure Tourism in Vocational Education and Training) heldur áfram af fullum krafti og gaman er að geta nú greint frá fyrsta íslenska námskeiðinu sem er þriðja í röðinni af þeim níu námskeiðum sem prufukeyrð verða í verkefninu. Nú þegar hefur verið greint frá fyrstu tveimur námskeiðunum á vef FAS. Íslenska námskeiðið var prufukeyrt dagana 21. – 25. janúar sl. og snérist um jöklaferðamennsku. Námskeiðið fékk enska heitið Ice adventure – Planning and Skills sem útleggst sem Ævintýri á ís, skipulag og færni á íslensku.

Hugmyndafræði ADVENT verkefnisins snýst að miklu leyti um að þátttakendur á námskeiðum leggi þekkingu sína og reynslu saman og í gegnum upplifun, æfingar og samræður þátttakendanna verði til námssamfélag sem nýtist öllum jafnt til að auka þekkingu sína og færni. Þátttakendahópurinn samanstendur sem sagt ekki af nemendum og kennurum heldur eru það svokallaðir leiðandi þátttakendur sem stýra námskeiðinu en allir leggja í púkkið. Þeir leiðandi þátttakendur sem héldu utan um þetta námskeið voru Einar Rúnar Sigurðsson frá ferðaþjónustufyrirtækinu Öræfaferðum og Sigurður Ragnarsson og Eyjólfur Guðmundsson frá FAS. Þessir aðilar ásamt fleira góðu jökla- og fjalla fólki unnu að grunngerð námskeiðsins, en Einar, Siggi og Eyjólfur leiddu framkvæmdina sjálfa.

Þátttakendur námskeiðsins voru auk leiðandi þátttakendanna þriggja, ferðaþjónustuaðilar og nemendur frá þátttökulöndunum þremur, þrír frá Skotlandi, tveir frá Finnlandi og einn frá Íslandi.

Námskeiðið stóð í fimm daga þar sem fyrsti og síðasti dagur námskeiðsins fóru í ferðalög á milli Reykjavíkur og Hornafjarðar. Voru þessir dagar vel nýttir m.a. með stoppum við Sólheimajökul og fleiri áhugaverða staði. Lagt var upp úr því að skapa tækifæri fyrir samtöl allra þátttakenda og var þar víða komið við og t.d. rætt um rannsóknir á jöklum og eðli þeirra, skipulag jöklaferðamennsku og sögu hennar, öryggismál, sjálfbærni og margt fleira.

Hópurinn hélt til á Litla-Hofi í góðu yfirlæti og þaðan var haldið á jökul. Farið var á Skaftafells- og Breiðamerkurjökul og þeir báðir nýttir til að kynnast mismunandi skriðjöklum með jöklagöngum, íshellaskoðun, næturgistingu og ísklifri. Einnig var komið við í FAS þar sem málin voru rædd. Þátttakendur voru hæstánægðir með þessa prufukeyrslu og erum við sem að þessu verkefni stöndum þakklát gestunum fyrir framlag þeirra til  námskeiðsins. 

Fjórða námskeiðið í ADVENT verkefninu verður haldið í Skotlandi í mars þar sem námskeið um leiðsögn og túlkun á vettvangi og hvernig veita má gæðaþjónustu til ferðamanna verður prufukeyrt. Námskeiðið heitir á ensku Guiding and Interpretation – Quality Service. Þátttaka í námskeiðum ADVENT eru frábær leið til að byggja undir menntun innan afþreyingarferðaþjónustu á svæðinu og kjörið tækifæri fyrir þátttakendur að bæta við sig reynslu og þekkingu.

Nánar má lesa um ADVENT verkefnið á www.adventureedu.eu.  ADVENT er með instagramsíðu https://www.instagram.com/adventureedu2020/ og verkefnið hefur líka fésbókarsíðu https://www.facebook.com/AdventErasmus/

Evrópumeistarar í olíuleit

Eins og margir muna eflaust var haldin landskeppni í olíuleit í upphafi annar en sigurliðið í þeirri keppni öðlaðist þátttökurétt á lokakeppni í Cambridge. Það var liðið „Olíuleit með pabba“ sem sigraði landskeppnina en liðið skipa þeir Björgvin Freyr Larsson, Júlíus Aron Larsson, Kristján Vilhelm Gunnarsson og Oddleifur Eiríksson.
Lokakeppnin fór fram föstudaginn 25. janúar í Schlumberger Cambridge Research (SCR) en það er fyrirtæki sem sérhæfir sig m.a. í tæknilausnum fyrir olíuiðnað.  SCR er með starfsemi í 85 löndum og hjá fyrirtækinu starfa um 100.000 manns af rúmlega 140 þjóðernum í alls konar fyrirtækjum. Eitt fyrirtækjanna er Next sem er hugbúnaðarfyrirtæki og hannar m.a. olíuleitarleikinn. Auk þess að hýsa keppnina vill SCR kynna starfsemina og um leið benda ungu fólki á möguleg störf í framtíðinni.
Á lokakeppnina var einnig mætt liðið sem sigraði landskeppnina í Noregi auk nokkurra norskra styrktaraðila. Orkustofnun hefur styrkt keppnina á Íslandi um árabil og hefur með því framlagi gert íslenska sigurliðinu kleift að taka þátt í lokakeppni síðustu ára. Orkustofnun eru hér með færðar bestu þakkir.
Það er skemmst frá því að segja að strákarnir okkar komu agaðir og yfirvegaðir til leiks og voru mjög einbeittir á meðan keppnin stóð yfir. Það fór líka svo að þeir unnu með miklum yfirburðum og hlutu að launum verðlaunagrip og sæmdarheitið „Evrópumeistarar í olíuleit“.
Eftir keppnina var fyrirtækið kynnt og sagt frá því helsta sem það vinnur að. Það vakti athygli okkar að tæknin í olíuiðnaðinum er um margt lík og tækni í vinnslu á jarðhita á Íslandi. Þá vinnur fyrirtækið markvisst að því að vistsporið við vinnsluna verði sem minnst. Nú er t.d. reynt að dæla sem mestu af CO2 niður í jörðina fremur en að sleppa því út í andrúmsloftið.
Eftir hádegismat var farin skoðunarferð um fyrirtækið og síðar um daginn skoðuðum við Cambridge undir leiðsögn. Þetta er þekktur háskólabær og þar eru 31 „college“ skólar staðsettir og mjög eftirsótt að komast í nám þangað. Margir skólanna hafa starfað öldum saman. Kvöldinu lauk svo á sameiginlegum málsverði á steikhúsi í Cambridge.
Á laugardeginum var svo haldið til London þar sem deginum var eytt í það að skoða mannlífið og fara á skemmtilega sögusýningu um London fyrr á tímum. Hópurinn átti flug til Íslands á laugardagskvöldinu og kom heim til Hafnar seinni partinn á sunnudag.
Það er ekki á hverjum degi sem skólinn getur státað sig af titlum og af því tilefni var efnt til móttökuhátíðar í FAS. Þar fengu strákarnir viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna og skólinn fékk verðlaunagripinn afhentan og fer hann nú í glerskápinn góða á efri hæðinni. Þar mun hann standa til samlætis þeim tveimur verðlaunagripum sem FAS hefur fengið áður fyrir olíuleit.

Í lokin má geta þess að strákarnir fjórir voru einstaklega flottir ferðafélagar og stóðu sig alls staðar með miklum sóma en voru engu að síður staðráðnir að eiga skemmtilega daga og njóta ferðarinnar. Það er gaman þegar allt gengur svona vel.