Reglur um brottvikningu úr námi
- Skólameistari má víkja nemanda úr einstaka áföngum og úr skóla uppfylli hann ekki kröfur um mætingar, ástundun eða hegðun. Skólameistari skal leita umsagnar skólaráðs áður en til brottvikningar kemur.
- Sé því við komið skal nemandi áður en til brottvikningar kemur hafa fengið ítrekað tiltal frá kennara og skriflega áminningu frá skólameistara. .
- Skólameistari getur vísað nemanda fyrirvaralaust úr skóla ef ekki er hægt að koma við áminningu sökum alvarleika máls.
- Áminningin skal vera skrifleg og í henni skal koma fram hvert brotið er, hver viðurlögin verði ef nemandinn heldur uppteknum hætti og hver frestur nemanda er til að koma fram andmælum.
- Nemandi hefur rétt á að andmæla þeim ávirðingum sem á hann eru bornar og standa fyrir máli sínu. Frestur til andmæla skal tilgreindur áminningarbréfi.
- Skólameistari sker úr um það hvort andmæli nemanda séu tekin gild og málið fellt niður.
- Sé nemandi yngri en 18 ára skal forráðamaður hans vera viðstaddur formlega áminningu.
- Ákvörðun skólameistara um brottvikningu nemanda má kæra til menntamálaráðuneytis.
- Nemandi sem rekinn er úr skóla eða áfanga skal skráður hættur í gögnum skólans.
- Ekki skal geyma gögn varðandi brottrekstur lengur en það skólaár sem brottvikning á sér stað nema málinu hafi ekki verið lokið.
Breytt á kennarafundi 30.8. 2013.