Óflokkað

Umhverfið við Heinabergsjökul skoðað

Í dag var komið að árlegri ferð að Heinabergsjökli. Það voru staðnemendur í inngangsáfanga að náttúruvísundum og nemendur á starfsbraut sem fóru í ferðina ásamt kennurum. Áður fyrr voru mælingar á sporði Heinabergsjökuls meginviðfangsefnið í þessum ferðum en eftir gífurlegar breytingar á jöklinum tölum við í dag um skoðunarferð þar sem landmótun jökla er skoðuð og tengd við breytingar á svæðinu. Með í för að þessu sinni voru Snævarr Guðmundsson sérfræðingur um jökla en hann er einnig forstöðumaður Náttúrustofu Suðausturlands og Marcela Slobodaniuc landvörður sem hefur starfað frá árinu 2022 hjá Vatnajökulsþjóðgarði. Þau sögðu frá ýmsu á leiðinni sem viðkemur landmótun jökla og störfum landvarða. Það er ómetanlegt að hafa aðgang að sérfræðingum í ferðum sem þessum. 

Ferðin í dag hóst við gömlu brúna yfir Heinabergsvötn en þegar sú brú var byggð 1947 voru þar Heinabergsvötnin, mikil og straumþung jökulá. En sú brú nýttist ekki nema í nokkra mánuði því þá urðu þær breytingar að vatnið sem áður féll undir brúna fann sér nýja leið og fór yfir í Kolgrímu. Á leiðinni er margt sem viðkemur landmótun jökla. Við erum t.d. að virða fyrir okkur; jökulgörðum, jökulruðningum, grettistökum, jökulkembum, árfarvegum og jökulám. Einnig horfum við eftir því hvernig landið veðrast og hvernig vatn grefur sig niður í landið. Og í ferðum sem þessum þarf auðvitað að taka með nesti til að næra bæði lund og maga.

Það gekk allt ljómandi vel í dag. Þó að einhverjir dropar hafi fallið var logn og ágæt skyggni. Kærar þakkir fyrir góðan dag.

Hér má sjá nokkrar myndir úr ferðinni í dag.