Námsferð til Danmerkur
Sunnudaginn 1. nóvember leggur af stað hópur nemenda ásamt kennurum til Danmerkur. Þetta eru þrettán nemendur, átta þeirra eru á húsasmíðabraut í FAS og fimm eru á starfsbraut.
Leiðin liggur til Ringsted sem er á Sjálandi. Þar á að heimsækja og stunda nám við ZBC (Zealand Business College) sem er einn af stærstu tækni- og starfsnámsskólum í Danmörku. Hópurinn mun gista á heimavist skólans og taka þátt í daglegu skólastarfi í viku 45. Nemendur í húsasmíði fara inn á trésmíðabraut, hluti nemenda á starfsbraut verður á verkstæði og hluti í eldhúsi starfsbrautar. Hópurinn kemur aftur heim á Höfn laugardaginn 7. nóvember.
Það eru sannarlega spennandi tímar framundan hjá væntanlegum ferðalöngum og það verður gaman að fylgjast með þeim.