Innritun og umsóknir
Innritun í framhaldsskóla á haustönn 2026
Starfsbrautir: 1. febrúar – 28. febrúar
Almennar umsóknir: 13. mars – 26. maí
Nýnemar (úr grunnskóla): 24. apríl – 10. júní
Sótt er um með því að fara inn á umsóknarvef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.
Innritun í fjarnám fyrir haustönn 2026 stendur yfir frá 13.mars til og með 31. ágúst 2025.
Upplýsingar um námsleiðir í boði er að finna HÉR.
Einnig er í boði að stunda nám í stökum áföngum. Upplýsingar um áfanga í boði er hægt að nálgast HÉR. Athugið að þótt áfangi sé í boði er ekki fullvíst að hann verði kenndur.
Upplýsingar um inntökuskilyrði og fjarnám er að finna undir flipunum til hægri.
Innritunargjöld
Innritunargjöld eru greidd fyrirfram fyrir hverja önn. Greiði nemandi ekki innritunargjaldið á gjalddaga hækkar það. Ekki er gerð stundatafla fyrir nemendur sem eru innritaðir en eiga ógreidd innritunargjöld. Þessi gjöld eru óafturkræf þó nemandi af einhverjum ástæðum hætti við skólavist. Gjaldskrá FAS er að finna HÉR.
Nemendafélagsgjald er innheimt með innritunargjaldi. Nemandi getur sagt sig úr nemendafélagi og fengið gjaldið endurgreitt í fyrstu viku eftir að skóli hefst.
Mat á námi úr öðrum skólum
Nemendur fá viðurkennt nám úr öðrum framhaldsskólum metið til eininga við skólann. Gömlum námseiningum er varpað yfir í nýjar en almenna reglan er sú að 3 gamlar einingar eru metnar sem 5 nýjar einingar. Misjafnt er hvernig nám úr öðrum skólum nýtist nemanda í FAS, þ.e.a.s hvort það er metið sem hluti af kjarna brautar eða sem óbundið val. Nauðsynlegt er fyrir hvern og einn nemanda að fara vel yfir námsferil sinn og skipulag með fjarnámsstjóra.
Nemendur þurfa að fylgjast vel með því að nám sem þeir velja við skólann sé fullnægjandi undirbúningur undir framhaldsnám í öðrum skólum. Upplýsingar um nauðsynlegan undirbúning eiga að vera tiltækar á heimasíðu hvers og eins skóla. Vanti slíkar upplýsingar geta nemendur leitað til náms- og starfsráðgjafa.