Óflokkað

Bleikt þema í FAS í dag

Öll þekkjum við einhvern sem hefur greinst með krabbamein og vitum að það getur verið erfið reynsla, bæði fyrir þá sem fá krabbamein en ekki síður fyrir fjölskyldu og vini.

Krabbameinsfélagið sem hefur veitt ómældan stuðning við bæði þá sem greinast og ekki síður aðstandendur stóð árið 2000 fyrir átakinu Bleiku slaufunni þar sem almenningi gafst kostur á að styrkja starfsemina með því að kaupa bleika slaufu. Átakið er tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Á hverju ári kemur ný útgáfa af Bleiku slaufunni.

Árið 2008 var ákveðið að innleiða sérstakan samstöðudag þar sem landsmenn voru hvattir til þess að klæðast bleiku, lýsa upp umhverfið og sýna konum sem greinst hafa með krabbamein stuðning í verki. Upphaflega var dagurinn haldinn á föstudögum um miðjan október en hefur á síðustu árum færst yfir á miðvikudaga. Og í dag, miðvikudaginn 21. október er bleiki dagurinn haldinn um allt land. Af því tilefni var kennarastofan færð í bleikan búning, boðið var upp á bleikt með kaffinu og flestir í skólanum klæðast einhverju bleiku. Kallarnir okkar í FAS voru þar engin undantekning.