Áfangalýsingar

Áfangalýsingar FAS
93 áfangar
AFÍÞ1AA05Afreksíþróttasvið 1

AFÍÞ1AA05 - Afreksíþróttasvið 1

Áfanginn er þríþættur og byggir fyrsti þátturinn á tækniþjálfun sem er sérsniðin að viðkomandi íþróttagreingrein. Annar þátturinn felst í styrkþjálfun þar sem lögð er áhersla á líkamlega styrktar- og liðleikaþjálfun. Þriðji þátturinn er fagbókleg kennsla þar sem áhersla er á kennslu grunnþátta næringar íþróttafólks, markmiðasetningu, heilbrigðs lífsstíls, liðsheildar, mikilvægi svefns og hvíldar, íþróttameiðsla og viðbragða við þeim. Ríkar kröfur eru gerðar til nemenda um góða ástundun og námsárangur.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Engar
AFÍÞ1AB05Afreksíþróttasvið 2

AFÍÞ1AB05 - Afreksíþróttasvið 2

Markmið áfangans er að efla nemandann sem íþróttamann og gera nemendur líkamlega, félagslega og hugarfarslega tilbúna til að takast á við það álag sem fylgir því að stefna að því vera í fremstu röð í sinni íþrótt. Áfanginn er þríþættur og byggir fyrsti þátturinn á tækniþjálfun sem er sérsniðin að viðkomandi íþróttagreingrein. Annar þátturinn felst í styrkþjálfun þar sem lögð er áhersla á líkamlega styrktar- og liðleikaþjálfun Þriðji þátturinn er bókleg kennsla og þar sem fjallað er um grundvallaratriði heilsu og góðs lífsstíls og áhrif hans en einnig um markmiðasetningu, næringu, æfingaálag, endurheimt, þol og styrk, afreksfólk og íþróttir. Að auki er stefnt að því að fara í vettvangs- og hópeflisferð tengda náminu. Ríkar kröfur eru gerðar til nemenda um góða ástundun og námsárangur

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Engar
AFÍÞ2BA05Afreksíþróttasvið 3

AFÍÞ2BA05 - Afreksíþróttasvið 3

Áfanginn er þríþættur og byggir fyrsti þátturinn á tækniþjálfun sem er sérsniðin að viðkomandi íþróttagreingrein. Annar þátturinn felst í styrkþjálfun þar sem lögð er áhersla á líkamlega styrktar- og liðleikaþjálfun. Þriðji þátturinn er fagbókleg kennsla þar sem markmiðið er að efla vitneskju nemanda um íþróttir og þá þætti íþrótta sem gætu hjálpað nemendum að ná lengra. Nemendur öðlist skilning á hvernig þau eiga að æfa í eigin tíma, læri að setja sér raunhæf og fagmannleg markmið og kunni að kljást við hindranir (meiðsli, stress, lítið sjálfstraust) sem gætu komið upp við íþróttaiðkun þeirra. Ríkar kröfur eru gerðar til nemenda um góða ástundun og námsárangur

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
Hafa lokið 10 einingum á fyrsta þrepi á afreksíþróttasviði
AFÍÞ2BB05Afreksíþróttasvið 4

AFÍÞ2BB05 - Afreksíþróttasvið 4

Markmið afreksíþróttasviðsins er gera nemendur líkamlega, félagslega og hugarfarslega tilbúna til að takast á við það álag sem fylgir því að stefna að því vera í fremstu röð í sinni íþrótt. Áfanginn er þríþættur og byggir fyrsti þátturinn á tækniþjálfun sem er sérsniðin að viðkomandi íþróttagreingrein. Annar þátturinn felst í styrkþjálfun þar sem lögð er áhersla á líkamlega styrktar- og liðleikaþjálfun. Þriðji þátturinn er fagbókleg kennsla þar sem markmiðið er að efla vitneskju nemanda um íþróttir og þá þætti íþrótta sem gætu hjálpað nemendum að ná lengra. Nemendur öðlist skilning á hvernig þau eiga að æfa í eigin tíma, læri að setja sér raunhæf og fagmannleg markmið og kunni að kljást við hindranir (meiðsli, stress, lítið sjálfstraust) sem gætu komið upp við íþróttaiðkun þeirra. Ríkar kröfur eru gerðar til nemenda um góða ástundun og námsárangur

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
Hafa lokið 10 einingum á fyrsta þrepi á afreksíþróttasviði
DANS1ML05Dönskugrunnur 2

DANS1ML05 - Dönskugrunnur 2

Áfanginn er ætlaður nemendum sem ekki náðu tilskyldum árangri í grunnskóla. Í áfanganum er lögð höfuðáhersla á orðaforða, skilning og málnotkun. Þetta er síðari áfangi af tveimur í undirbúningsnámi.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Dönskugrunnur 1 eða C á grunnskólaprófi
DANS1TM05Dönskugrunnur 1: Orðaforði og skilningur

DANS1TM05 - Dönskugrunnur 1: Orðaforði og skilningur

Áfanginn er ætlaður nemendum sem ekki náðu tilskyldum árangri í grunnskóla. Í áfanganum er lögð höfuðáhersla á orðaforða og skilning. Þetta er fyrri áfangi af tveimur í undirbúningsnámi.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Engar
DANS2ST05Lesskilningur og málnotkun

DANS2ST05 - Lesskilningur og málnotkun

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur lesi fjölbreytta texta, bæði fréttatengda þar sem þeir kynnast Danmörku dagsins í dag en einnig fræðilega og bókmenntalega texta svo nemendur kynnist þeim arfi sem menning þeirra hvílir á. Einnig er lögð áhersla á að kynna danska menningu í máli og myndum með kvikmyndum og sjónvarpsþáttum o.fl. Lögð er áhersla á að þjálfa og æfa málnotkun og danska málfræði.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
B á grunnskólaprófi
EÐLI2LA05Hreyfing og ljós

EÐLI2LA05 - Hreyfing og ljós

Í þessum fyrsta áfanga í eðlisfræði er farið yfir mælieiningar, hreyfingu, kraft, orku, þrýsting og ljósgeislafræði og áhersla lögð á að nemendur tileinki sér vísindaleg vinnubrögð.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
STÆR2HV05 á undan eða samhliða
EFNA2LO05Atómið og mólhugtakið

EFNA2LO05 - Atómið og mólhugtakið

Í þessum byrjunaráfanga í efnafræði kynnast nemendur ýmsum undirstöðuhugtökum efnafræðinnar, svo sem: frumeind, sameind, jón, frumefni, efnasamband, sterk og veik efnatengi, efnahvarf, efnajafna, mól og efnafræði lausnar. Nemendur læra að nýta sér lotukerfi og þekkja lotubundna eiginleika frumefna. Þeir fá þjálfun í að stilla efnajöfnur, tengja hugtakið mól við efnajöfnurnar og nýta sér þessi tengsl til ýmissa útreikninga. Áhersla er lögð á dæmareikning.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
INGA1NR05
EFNA3EG05Lofttegundir og orka, jafnvægi og hraðafræði efnahvarfa

EFNA3EG05 - Lofttegundir og orka, jafnvægi og hraðafræði efnahvarfa

Í þessum framhaldsáfanga er haldið áfram með grunnatriði efnafræðinnar þar sem sem byggt er ofan á fyrri þekkingu. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru eftirfarandi: yfirlit yfir helstu efnahvörf, hraði efnahvarfa og hraðalögmálið, efnafræði lofttegunda, orkuhugtakið almennt og í tengslum við efnahvörf, og jafnvægishugtakið í tengslum við efnahvörf. Áhersla er lögð á dæmareikning þar sem ofangreindum efnisþáttum er fléttað saman. Einnig þurfa nemendur að gera verklegar æfingar sem tengjast efninu.

Einingafjöldi
5
Þrep
3
Forkröfur
EFNA2LO05
ENSK1LO05Enskugrunnur 2

ENSK1LO05 - Enskugrunnur 2

Í áfanganum eru grunnþættir tungumálanáms þjálfaðir. Lögð er áhersla á rétta málnotkun, að nemendur geti tjáð sig í töluðu og rituðu máli og geti tekið þátt í samræðum. Nemendur lesa stutta texta, smásögur, fréttaefni og efni af Netinu. Hlustun og myndefni notað sem efniviður í ýmiss konar æfingar.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Enskugrunnur 1 eða C á grunnskólaprófi
ENSK1RL05Enskugrunnur 1

ENSK1RL05 - Enskugrunnur 1

Í áfanganum eru grunnþættir tungumálanáms þjálfaðir. Lögð er áhersla á rétta málnotkun, að nemendur geti tjáð sig í töluðu og rituðu máli og geti tekið þátt í samræðum. Nemendur lesa stutta texta, smásögur, fréttaefni og efni af Netinu. Hlustun og myndefni notað sem efniviður í ýmiss konar æfingar.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Engar
ENSK2LS05Orðaforði, lestur og ritun

ENSK2LS05 - Orðaforði, lestur og ritun

Í áfanganum er áhersla lögð á að nemendur verði vel læsir á flóknari texta en áður. Þeir eru þjálfaðir í að tileinka sér orðaforða, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Lesin eru styttri og lengri bókmenntaverk úr hinum enskumælandi menningarheimi. Nemendur vinna í auknum mæli sjálfstætt að viðameiri verkefnum svo sem kynningum og stærri ritunarverkefnum.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
ENSK2SG05
ENSK2SG05Enska 1 - Styrking grunnþátta

ENSK2SG05 - Enska 1 - Styrking grunnþátta

Grunnþættir tungumálanáms styrktir. Lögð er áhersla á rétta málnotkun í rituðu og töluðu máli.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
B á grunnskólaprófi
ENSK3RO05Enska 3 - Ritun, orðaforði, bókmenntir og menning

ENSK3RO05 - Enska 3 - Ritun, orðaforði, bókmenntir og menning

Aðaláhersla lögð á fræðilegan orðaforða og notkun hans. Unnið mjög markvisst með ritað mál, uppsetningu, orðaforða og málfar. Fjallað um bókmenntir, stefnur og stíl. Einnig verður lögð áhersla á munnlega þjálfun.

Einingafjöldi
5
Þrep
3
Forkröfur
ENSK2LS05
ENSK3SR05Menning, saga, ritun og akademískur orðaforði

ENSK3SR05 - Menning, saga, ritun og akademískur orðaforði

Í áfanganum er unnið með fjölbreytta og flókna texta, bæði bókmenntalega og fræðilega. Menningarheimar enskunnar kannaðir gegnum bókmenntir, kvikmyndir o.fl. Áfram lögð mikil áhersla á ritun og tjáningu í rituðu máli.

Einingafjöldi
5
Þrep
3
Forkröfur
5 einingar á hæfniþrepi 3
FÉLA2FS05Inngangur að félagsfræði

FÉLA2FS05 - Inngangur að félagsfræði

Í áfanganum er hið félagsfræðilega sjónarhorn í öndvegi og áhersla á grunnstoðir samfélagins og hvernig samfélagið stjórnar hegðun einstaklinganna. Áhersla er á gagnrýna hugsun, víðsýni og umburðarlyndi.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
Engar
FÉLA2KF05Kenningar í félagsfræði

FÉLA2KF05 - Kenningar í félagsfræði

Í áfanganum er fjallað um frumkvöðla félagsfræðinnar, kenningar þeirra og framlag til aukins skilnings á samfélaginu sem er skoðað í ljósi mismunandi kenninga og drepið er á nokkrum þekktum rannsóknum innan félagsvísinda. Áhersla er lögð á að nemendur átti sig á og öðlist dýpri skilning á hugtökum sem voru kynnt í FÉLA1FS05 og setji þau í fræðilegra samhengi.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
FÉLA2FS05
FJÁR1FE02Fjármálalæsi

FJÁR1FE02 - Fjármálalæsi

Markmið áfangans er að opna augu nemenda fyrir gildi þess að hafa yfirsýn yfir eigin útgjöld og tekjur. Í áfanganum er stefnt að því að gera nemendur meðvitaða um fjármál, peninga og hlutverk þeirra í daglegu lífi. Farið verður í laun og frádrátt og hvert hann fer. Einnig verður farið í rekstur heimilis og bíls og fleira sem snertir fjárhagslegar skuldbindingar sem nemendur þurfa að takast á hendur. Heimilisbókhald með notkun töflureiknis og mikilvægi þess að halda utan um tekjur og gjöld verða einnig tekin fyrir. Réttindi og skyldur á vinnumarkaði verða til umfjöllunar.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
Engar
GRTE1FF05Grunnteikning 1

GRTE1FF05 - Grunnteikning 1

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist almenna undirstöðuþekkingu og þjálfun í teiknifræðum. Áfanginn skiptist í tvo megin efnisþætti. Í fyrri efnisþætti læra nemendur fallmyndun og í þeim seinni ásmyndun og fríhendisteikningu. Í áfanganum er gert ráð fyrir að nemendur öðlist færni í meðferð og notkun mæli- og teikniáhalda, myndrænni vinnu með viðfangsefni starfsgreina, lestur teikninga og fái grunnþjálfun í gerð vinnuteikninga og þrívíðra rissteikninga. Áfanginn er undirbúningur fyrir áframhaldandi nám í teiknifræðum og lestri vinnuteikninga.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Engar
GRTE2FÚ05Grunnteikning 2

GRTE2FÚ05 - Grunnteikning 2

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist áframhaldandi almenna þekkingu og þjálfun í teiknifræðum. Áfanginn skiptist í þrjá meginþætti: flatarteikningu, fallmyndun og yfirborðsútflatninga og fríhendisteikningu. Í áfanganum er gert ráð fyrir að nemendur öðlist frekari færni í meðferð og notkun mæli- og teikniáhalda, myndrænni vinnu með viðfangsefni starfsgreina, þjálfist í lestri og gerð vinnu-teikninga, fríhendisrissteikninga, gerð flatarmynda og útflatninga. Áfanginn er undirbúningur fyrir fagbundið nám í teiknifræðum.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
GRTE1FF05
HEFR1MM03Heimilisfræði með áherslu á mat og menningu frá öðrum löndum

HEFR1MM03 - Heimilisfræði með áherslu á mat og menningu frá öðrum löndum

Í áfanganum er lögð áhersla á mat og matarmenningu nokkurra þjóða. Nemendur fræðast um sögu og uppruna matarins og hvernig hefðir, menning, trúarbrögð, lega landa, landsvæði og fleira getur haft áhrif þar á. Nemendur kynnast fjölbreyttu hráefni og þjálfast í að matreiða rétti frá ýmsum löndum. Lögð er áhersla á að nemendur beri virðingu fyrir menningu og hefðum annarra þjóða. Áfanginn er ætlaður nemendum á stafsbraut.

Einingafjöldi
3
Þrep
1
Forkröfur
Engar
HEIF1AL01Íþróttir og heilsurækt

HEIF1AL01 - Íþróttir og heilsurækt

Nemendur skipuleggja sína íþróttaþjálfun/heilsurækt sjálf, setja sér markmið, gera æfingaáætlun og skipuleggja mælingar á þeim þáttum sem best eru til þess fallnir að meta árangur æfinganna. Nemendur æfa síðan eftir sinni áætlun, framkvæma mælingar og endurmeta markmiðin eftir því sem fram líður. Nemendur velja sér þá íþrótt/heilsurækt sem þeir kjósa sér.

Einingafjöldi
1
Þrep
1
Forkröfur
HEIF1GR03 og HEIF1FR03
HEIF1FR02Heilsufræði - Fjölbreytt heilsurækt

HEIF1FR02 - Heilsufræði - Fjölbreytt heilsurækt

Áfanginn er bæði verklegur og bóklegur, með markvissri fræðslu um líkams- og heilsurækt. Nemendur fá tækifæri til að prófa fjölbreyttar aðferðir í þjálfun. Áhersla er lögð á að nemendur finni hreyfingu sem hentar þeirra getu og áhuga. Einnig er veitt markviss fræðsla um forvarnagildi líkams- og heilsuræktar og hvatning til heilbrigðari lífshátta.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
Engar
HEIF1GR02Heilsufræði - Grunnþættir íþrótta

HEIF1GR02 - Heilsufræði - Grunnþættir íþrótta

Grunnatriði líkams- og heilsuræktar eru kynnt. Nemendur læra að velja æfingar sem auka þol, styrk og liðleika. Þeir fá einnig innsýn í helstu íþróttagreinar og almenna þrekþjálfun. Auk þess fá nemendur fræðslu um algengustu íþróttameiðsl og heilbrigðan lífsstíl, þar á meðal mikilvægi góðs mataræðis.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
Engar
HEIM2IN05Inngangur að heimspeki

HEIM2IN05 - Inngangur að heimspeki

Í áfanganum eru kenningar áhrifaríkustu heimspekinga í vestrænni heimspekisögu reifaðar og rökræddar. Áhersla er lögð á siðfræði og stjórnspeki. Tengsl heimspekinnar við önnur fræðasvið eru skoðuð og rædd. Sérstök áhersla er lögð á að flétta saman heimspeki við daglegt líf og persónulega reynslu nemenda. Nemendur eru þjálfaðir í gagnrýninni hugsun, skoðanaskiptum, virkri hlustun og lestri frumtexta.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
INGA1HF05
HEIM3HS05Siðfræði

HEIM3HS05 - Siðfræði

Í áfanganum er kafað ofan í áhrifaríkustu siðfræðikenningar vestrænnar heimspeki og áhrif þeirra reifuð. Hagnýt siðfræði er kynnt til sögunnar með sérstaka áherslu á umhverfissiðfræði. Lagt er upp með að tengja umhverfissiðfræðina við alþjóðleg umhverfisvandamál, Vatnajökulsþjóðgarð og nærumhverfi nemenda.

Einingafjöldi
5
Þrep
3
Forkröfur
HEIM2IN05
INGA1HF05Inngangur að hug- og félagsvísindum

INGA1HF05 - Inngangur að hug- og félagsvísindum

Í áfanganum er farið yfir helstu viðfangsefni í hug- og félagsvísindum og tengsl þeirra innbyrgðis. Sérstök áhersla er lögð á þekkingafræðilegan og heimspekilegan grunn hug- og félagsvísinda og áhrif hugmyndafræðinnar á skoðanir okkar og hugsun. Einnig er farið í helstu rökvillur og birtingarmyndir þeirra.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Engar
INGA1NR05Inngangur að náttúru- og raunvísindum

INGA1NR05 - Inngangur að náttúru- og raunvísindum

Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur kynnist náttúru- og raunvísindum á fjölbreyttan hátt og tengslum þeirra innbyrðis. Einnig verður lögð áhersla á vettvangsferðir og að nemendur læri að þekkja umhverfið sitt. Nemendur kynnist vísindalegum vinnubrögðum og vísindalegri hugsun.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Engar
INGF1HÖ01Inngangur að framhaldsskóla

INGF1HÖ01 - Inngangur að framhaldsskóla

Áfanginn er ætlaður nýnemum sem eru að stíga sín fyrstu skref í framhaldsskóla. Áhersla er lögð á að nemendur aðlagist nýju skólastigi og skólaumhverfi og átti sig á þjónustu, úrræðum og námskröfum skólans. Markmið áfangans er að vekja nemendur til vitundar um eigin markmið og framtíðaráætlanir og að þeir beri sjálfir ábyrgð á námi sínu og framtíðaráætlunum. Þetta er fyrri áfanginn af tveim.

Einingafjöldi
1
Þrep
1
Forkröfur
Engar
INGF1VÖ01Inngangur að framhaldsskóla

INGF1VÖ01 - Inngangur að framhaldsskóla

Áfanginn er ætlaður nýnemum sem eru að stíga sín fyrstu skref í framhaldsskóla. Áhersla er lögð á að nemendur aðlagist nýju skólastigi og skólaumhverfi og átti sig á þjónustu, úrræðum og námskröfum skólans. Markmið áfangans er að vekja nemendur til vitundar um eigin markmið og framtíðaráætlanir og að þeir beri sjálfir ábyrgð á námi sínu og framtíðaráætlunum. Þetta er seinni áfanginn af tveim.

Einingafjöldi
1
Þrep
1
Forkröfur
Engar
ÍSAN1AA05Íslenska sem annað mál

ÍSAN1AA05 - Íslenska sem annað mál

Námskeiðið er ætlað byrjendum í íslensku. Áhersla er lögð á að finna leið fyrir nemendur til að nálgast tungumálið eins og hentar þeim best, þannig að þeir hafi gaman af náminu. Nemendur eru hvattir til að nota tungumálið í daglegu lífi og unnið er með aðstæður og samtöl sem nýtast nemendum dags daglega. Áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði í íslensku og byggi upp orðaforða sem tengist daglegu lífi þeirra og athöfnum. Öll málfræði er unnin í samhengi við orðaforða námskeiðsins.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Engar
ÍSLE1DÆ04Íslenska með áherslu á dægurmenningu

ÍSLE1DÆ04 - Íslenska með áherslu á dægurmenningu

Í áfanganum er lögð áhersla á íslenska dægurmenningu s.s. íslenskar kvikmyndir, sjónvarps- og útvarpsþætti, hlaðvörp og leikrit. Farið verður yfir helstu atriði íslenskrar dægurmenningar frá upphafi og fram að okkar dögum. Kynnt verða íslenskar kvikmyndir og sjónvarpsþættir. Áhersla er lögð á þjálfun í lestri, ritun, tjáningu og málnotkun á fjölbreyttan hátt. Lögð verður áhersla á sjálfstæð vinnubrögð auk samvinnu nemenda. Nemendur nýti sér viðeigandi hjálpargögn og lestrarleið við hæfi hvers og eins.

Einingafjöldi
4
Þrep
1
Forkröfur
Engar
ÍSLE1FÖ04Íslenska með áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti í víðu samhengi

ÍSLE1FÖ04 - Íslenska með áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti í víðu samhengi

Áhersla verður lögð á að byggja á fyrri hæfni nemanda í íslensku s.s. lestri, lesskilningi, málskilning, málfræði, ritun og þess háttar með grunnþáttinn fjölbreytileiki að leiðarljósi. Unnið verður m.a. með hugtökin: aldur, búseta, kyn, fjölskyldugerðir, kynhneigð, menning, trúarbrögð, lífsskoðanir, menntun, minnihlutahópar og litarháttur.

Einingafjöldi
4
Þrep
1
Forkröfur
Engar
ÍSLE1LT05Íslenskugrunnur 1

ÍSLE1LT05 - Íslenskugrunnur 1

Farið er í undirstöðuatriði íslenskrar málfræði, stafsetningar, ritunar og lesturs til þess að undirbúa nemendur undir frekara nám í framhaldsskóla. Einnig eru nemendur þjálfaðir í framkomu og tjáningu. Þetta er fyrri áfangi af tveimur í undirbúningsnámi.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Engar
ÍSLE1MB04Íslenska með áherslu á bókmenntir

ÍSLE1MB04 - Íslenska með áherslu á bókmenntir

Í áfanganum er unnið með bókmenntir og sem flesta þætti íslenskunnar. Nemandinn lærir í gegnum bókmenntir og vinnur með þær á fjölbreyttan hátt. Áhersla er lögð á að nemandinn bæti orðaforða sinn og efli sjálfstraust sitt og trú á eigin málnotkun. Jafnframt er áhersla lögð á að nemandinn auki les- og/eða hlustunarskilning sinn og æfist í að skilgreina hugtök sem koma fram í texta. Nemendur fá þjálfun í að tjá skoðanir sínar í gegnum uppbyggilegar samræður. Notast er við einstaklingsmiðaðar bókmenntir og fjölbreytt verkefni. Megin áhersla er á að nemandinn viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem hann býr nú þegar að.

Einingafjöldi
4
Þrep
1
Forkröfur
Engar
ÍSLE1SR05Íslenskugrunnur 2: læsi og málfræði

ÍSLE1SR05 - Íslenskugrunnur 2: læsi og málfræði

Farið er í undirstöðuatriði íslenskrar málfræði, bókmennta, ritunar og lesturs til þess að undirbúa nemendur undir frekara nám í framhaldsskóla. Einnig eru nemendur þjálfaðir í framkomu og tjáningu. Þetta er síðari áfangi af tveimur í undirbúningsnámi.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Íslenskugrunnur 1 eða C á grunnskólaprófi
ÍSLE1TM04Íslenska með áherslu á tjáningu, framkomu og málskilning

ÍSLE1TM04 - Íslenska með áherslu á tjáningu, framkomu og málskilning

Megin áhersla verður á að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemendur búa nú þegar að. Markmiðið er að efla tjáningu og auka sjálfstraust nemenda. Nemendur fá þjálfun í að koma fram, tjá sig á mismunandi hátt og rökstyðja mál sitt. Áhersla er lögð á þjálfun í lestri, ritun, tjáningu og málnotkun á fjölbreyttan hátt. Farið verður í fjölbreytt viðfangsefni, s.s. umræður, framsagnarverkefni, hugtakaverkefni og fjölbreytt verkefni sem stuðla að því að styrkja sjálfstraust nemenda.

Einingafjöldi
4
Þrep
1
Forkröfur
Engar
ÍSLE2GO05Goðafræði, mál og menning

ÍSLE2GO05 - Goðafræði, mál og menning

Fjallað er ítarlega um norræna goðafræði og helstu þættir málsögu eru teknir fyrir. Einnig læra nemendur um mismunandi gerðir bókmennta. Nemendur eru þjálfaðir í gerð kjörbóka- og heimildaritgerða og læra um grundvallarvinnubrögð ritunar.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
B á grunnskólaprófi
ÍSLE2NH05Nútímabókmenntir og hugtakabeiting

ÍSLE2NH05 - Nútímabókmenntir og hugtakabeiting

Fjallað verður um bókmenntasögu frá 1900 til samtímans. Lesnir verða fjölbreyttir textar. Nemendur læra helstu hugtök bókmenntafræði og æfast í að beita þeim. Einnig verður lögð áhersla á munnlega tjáningu. Nemendur þjálfast í samræðutækni, að tjá skoðun sína og að taka afstöðu. Nemendur fá leiðbeiningar við ritun texta og við notkun heimilda.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
B á grunnskólaprófi
ÍSLE3FM05Fornöld og miðaldir

ÍSLE3FM05 - Fornöld og miðaldir

Fjallað verður um bókmenntasögu frá 800 til 1550. Nemendur beita helstu hugtökum bókmenntafræði. Lesnir verða fjölbreyttir textar. Meginbreytingar í málinu verða kynntar. Nemendur skrifa bókmenntaritgerð byggða á rannsókn. Farið verður dýpra í heimildavinnu, heimildarýni og meðferð tilvitnana. Nemendur kynna eigin rannsókn og sitja fyrir svörum. Hugtök í beyginga- og setningafræði verða kynnt nánar og skilningur á þeim dýpkaður.

Einingafjöldi
5
Þrep
3
Forkröfur
10 einingar í íslensku á hæfniþrepi 2
ÍSLE3LF05Lærdómsöld til fullveldis

ÍSLE3LF05 - Lærdómsöld til fullveldis

Fjallað verður um bókmenntasögu frá 1550 til 1900. Lesnir verða fjölbreyttir textar. Nemendur túlka þá og setja í samhengi við eigin reynslu og skoðanir. Hugtök í beyginga- og setningafræði dýpkuð og nemendur þjálfast í beitingu þeirra. Einnig þjálfast nemendur í samræðum um álitamál. Farið verður dýpra í heimildavinnu, heimildarýni og meðferð tilvitnana. Nemendur ná betri tökum að setja upp ritgerðir og ganga frá texta.

Einingafjöldi
5
Þrep
3
Forkröfur
10 einingar í íslensku á hæfniþrepi 2
ÍÞRÓ1AÍ03Almenn heilsurækt

ÍÞRÓ1AÍ03 - Almenn heilsurækt

Áfanginn er verklegur með markvissri fræðslu um líkams- og heilsurækt. Nemandinn spreytir sig á fjölbreyttum aðferðum þol-, styrktar- og liðleikaþjálfunar. Áfanginn er ætlaður nemendum á sérnámsbraut og er því einstaklingsmiðaður. Lögð er áhersla á að nemandi finni hreyfingu við sitt hæfi út frá getu og áhuga.

Einingafjöldi
3
Þrep
1
Forkröfur
Engar
JARÐ2VH05Veður- og haffræði

JARÐ2VH05 - Veður- og haffræði

Í þessum áfanga verður fjallað um eðli og eiginleika lofthjúps jarðar, gróðurbelti jarðar, hafið og jökla. Leitast verður við að skoða hvaða áhrif tilvera mannsins hefur á ofangreinda þætti.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
INGA1NR05
KYFR2IN05Inngangur að kynjafræði

KYFR2IN05 - Inngangur að kynjafræði

Í áfanganum er unnið með grunnhugtök kynjafræðinnar. Skoðuð eru helstu hugtök fræðigreinarinnar og birtingarmyndir þeirra í nútímasamfélagi. Lögð er áhersla á að tengja efni áfangans við daglegt líf nemenda.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
INGA1HF05
KYFR3KM05Kynjamannfræði

KYFR3KM05 - Kynjamannfræði

Í áfanganum er unnið í anda mannfræðinnar með áherslu á femíníska mannfræði. Helstu hugtök fræðigreinarinnar mannfræði eru skoðuð í nútímasamfélagi og í sögulegu ljósi. Lögð er áhersla á menningu og áhrif hennar á stöðu kynjanna. Einnig er þróun femínískrar mannfræði skoðuð.

Einingafjöldi
5
Þrep
3
Forkröfur
KYFR2IN05
LEIK1LH05Þátttaka í leiksýningu

LEIK1LH05 - Þátttaka í leiksýningu

Þátttaka í uppsetningu leiksýningar í samvinnu leikhóps. Nemendur kynnast öllu ferlinu við undirbúning sýningar, taka að sér hlutverk eða vinna við aðra þætti, s.s. tónlistarvinnu eða útlitshönnun sýningar. Nemandinn fær markvissa þjálfun og tilsögn í ferlinu. Æfingatímabil verður 6-8 vikur og sýningar í kjölfar þess.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Engar
LÍFF2FA05Almenn líffræði

LÍFF2FA05 - Almenn líffræði

Í þessum áfanga er gerð grein fyrir hlutverki líffræðinnar og tengslum hennar við aðrar fræðigreinar. Fjallað er um helstu viðfangsefni líffræðinnar, farið yfir grunnhugtök og líffræðilega ferla og fjölbreytileiki lífvera kynntur. Skoðað verður samspil milli lífvera og umhverfis. Helstu efnisþættir eru: líffræði sem fræðigrein og undirflokkar hennar, helstu sameiginleg einkenni lífvera, efni og helstu efnaferlar í lífverum, bygging og starfsemi fruma, fjölbreytileiki og flokkun lífvera, grundvallaratriði vistfræðinnar og helstu kenningar um þróun. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu og skilning á umhverfi sínu og því sem menn eiga sameiginlegt með öðrum lífverum.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
INGA1NR05
LÍFF2LF05Lífeðlisfræði

LÍFF2LF05 - Lífeðlisfræði

Í áfanganum verður farið yfir helstu grundvallaratriði í líffæra- og lífeðlisfræði. Fjallað verður meðal annars um fæðunám, meltingu, öndun, efnaflutning, úrgangslosun, ónæmissvörun, boðflutning, hreyfingu, æxlun, fósturþroska, skynjun, stjórn efnaskipta og samvægi. Hvert einstakt líffærakerfi er tekið fyrir og hliðstæð kerfi borin saman. Fjallað er um heilbrigða starfsemi en einnig algengustu frávik.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
LÍF2FA05
LÝÐH1FV02Lýðheilsa með áherslu á heilbrigðan lífstíl, heilsu og forvarnir

LÝÐH1FV02 - Lýðheilsa með áherslu á heilbrigðan lífstíl, heilsu og forvarnir

Áfanginn fjallar um heilbrigðan lífsstíl, heilsu og forvarnir. Markmið áfangans er að efla færni nemenda til að takast á við lífið sem ábyrgir og heilbrigðir einstaklingar. Umfjöllunarefni áfangans ná yfir mikilvægi þess að hafa heilbrigðan lífsstíll og áhrif lifnaðarhátta á heilsufar, fræðsla og forvarnir.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
Engar
LÝÐH1GR02Lýðheilsa með áherslu á geðheilbrigði

LÝÐH1GR02 - Lýðheilsa með áherslu á geðheilbrigði

Unnið er með þá þætti sem stuðla að góðri líðan og eflingu sjálfsmyndar. Nemendur kynnast ýmsum þáttum sem tengjast geðheilsu og geðvernd. Unnið verður með mikilvægi góðra lifnaðarhátta og tengsl þeirra við geðheilsu fólks.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
Engar
LÝÐH1KY02Lýðheilsa með áherslu á kynheilbrigði

LÝÐH1KY02 - Lýðheilsa með áherslu á kynheilbrigði

Áfanginn fjallar um kynheilbrigði, samskipti í nánum samböndum og almenna kynfræðslu. Áhersla verður lögð á opnar umræður um ólíkar tilfinningar, þarfir, langanir og sjálfsþekkingu einstaklinga.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
Engar
LÝÐH1PH02Lýðheilsa með áherslu á líkamann og hreinlæti

LÝÐH1PH02 - Lýðheilsa með áherslu á líkamann og hreinlæti

Lögð er áhersla á að nemandinn öðlist grunnþekkingu í heilbrigðu líferni með áherslu á líkamlega líðan og hreinlæti. Unnið verður með þætti sem auka færni nemandans í að taka ábyrgð á eigin líkama og líferni.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
Engar
LÝÐH1SS02Lýðheilsa með áherslu á sjálfsmynd og samskipti

LÝÐH1SS02 - Lýðheilsa með áherslu á sjálfsmynd og samskipti

Markmið áfangans er að efla sjálfsmynd og sjálfsvitund nemanda. Unnið verður með samskipti, eigin hegðun og framkomu og hversu mikilvægt það er að geta átt ábyrg og farsæl samskipti við aðra. Nemendur rýna í áhugamál og styrkleika hvors annars með það markmiði að auka sjálfsvitund og styrkja samskiptafærni nemanda.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
engar
LÝÐH1SÞ02Lýðheilsa með áherslu virkni og samfélagsþátttöku

LÝÐH1SÞ02 - Lýðheilsa með áherslu virkni og samfélagsþátttöku

Áfanginn fjallar um fjölbreyttar tómstundir og afþreyingu sem fólk stundar sér til dægradvalar. Í áfanganum er tómstundaframboð í nærsamfélaginu kannað og mikilvægi tómstundaiðju í daglegu lífi. Farið verður yfir hvaða getu þarf til að sinna tómstundum og skoðað hvaða tómstundir henta hverjum með tilliti til áhuga, aldur og líkamlegrar færni.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
Engar
MATR1AM05Almenn matreiðsla

MATR1AM05 - Almenn matreiðsla

Nemendur matreiða ýmsa hagnýta, fljótlega og skemmtilega rétti. Kennd er meðferð hráefnis og um næringarinnihald matvæla, hreinlæti og vinnubrögð í eldhúsi.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Engar
NÁSS2MÁ01Lífið eftir útskrift

NÁSS2MÁ01 - Lífið eftir útskrift

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur skoði hvar áhugi þeirra liggur og ígrundi hugmyndir sínar um nám og störf svo þeir eigi auðveldara með að taka ákvarðanir sem taka mið af áhuga og löngun til ákveðins náms og/eða ákveðinna starfa.

Einingafjöldi
1
Þrep
2
Forkröfur
Nemandi sé staðnemandi og á loka önn.
RANN3EM05Rannsóknaraðferðir félagsvísinda

RANN3EM05 - Rannsóknaraðferðir félagsvísinda

Í áfanganum kynnast nemendur rannsóknaraðferðum félagvísinda. Nemendur læra gagnaöflun og úrvinnslu í megindlegum og eigindlegum aðferðum. Lögð er áhersla á hagnýtingu rannsóknaraðferðanna með annað nám í huga.

Einingafjöldi
5
Þrep
3
Forkröfur
STÆR2TL05 eða samhliða
SAGA2AK05Almenn kynning á sögu mannkyns

SAGA2AK05 - Almenn kynning á sögu mannkyns

Í þessum áfanga er mannskynssagan kynnt frá landbúnaðarbyltingu til frönsku byltingarinnar. Farið er yfir áhrifaþætti í mótun nútímans og hvernig menning fornaldar, trúarbrögð, stjórnarfar og aðrir þættir hafa áhrif á nútímann. Leitast er við að tengja saman efni, atburði og áhrif þeirra til að nemendur geri sér grein fyrir áhrifum þess sem á undan er farið á það sem er í dag.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
INGA1HF05
SAGA2TU05Saga 20. aldarinnar

SAGA2TU05 - Saga 20. aldarinnar

Í áfanganum eru teknir fyrir valdir þættir mannkynssögu 20. aldar með áherslu á átök og áhrif þeirra á nútímasamfélagið. Áhersla er lögð á gagnrýna hugsun, heimildaleit, mat og notkun heimilda. Nemendur taka þátt og leggja sitt af mörkum í áfanganum með því að kafa dýpra í viðfangsefni sem fjallað er um. Skoðað er hvernig heimsmyndin breytist í gegnum átök og einnig hvernig Ísland breytist á 20. í ljósi heimsátaka.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
INGA1HF05
SAUM1GH05Fatasaumur

SAUM1GH05 - Fatasaumur

Nemendur læra vinnuferli við fatasaum, taka upp snið, sníða og sauma 2-3 flíkur. Fjallað er um mismunandi gerðir efna og hvernig þau haga sér í flíkum. Saumað er með beinsaumsvél og overlock vél.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Engar
SAUM2GH05Snið og saumur

SAUM2GH05 - Snið og saumur

Grunnsnið, hönnun og útfærsla.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
SAUM1GH05
SÁLF2IN05Inngangur að sálfræði

SÁLF2IN05 - Inngangur að sálfræði

Í áfanganum er fræðigreinin sálfræði kynnt fyrir nemendum, upphaf hennar og þróun. Fjallað er um helstu kenningar og fræðimenn og þær rannsóknaraðferðir sem notaðar eru í sálfræði. Grunnhugtök og sálfræðistefnur eru kynntar og grundvallarhugmyndir námssálfræðinnar. Einnig læra nemendur um mismunandi tegundir náms og minnisaðferðir.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
INGA1HF05
SÁLF3ÞÞ05Þroskasálfræði

SÁLF3ÞÞ05 - Þroskasálfræði

Í áfanganum er fjallað um þroskaferil mannsins og sérstaklega tekinn fyrir þroski tilfinninga, félagslegra samskipta, hugsunar og greindar. Einnig er fjallað um þroskahamlanir og þær skoðaðar út frá líffræðilegu og sálfræðilegu sjónarhorni. Nemendur fá æfingu í að ræða um og velta fyrir sér álitamálum sem tengja má við efni áfangans. Mótunaráhrif fjölskyldu og vina eru skoðuð og komið er inn á vandamál barna og unglinga, s.s. geðræn, tilfinningaleg og náms- eða hegðunarvandamál.

Einingafjöldi
5
Þrep
3
Forkröfur
SÁLF2IN05
STAR1HV02Innsýn og kynning á ólíkum störfum í nærsamfélaginu

STAR1HV02 - Innsýn og kynning á ólíkum störfum í nærsamfélaginu

Í áfanganum er lögð áhersla á störf í nærsamfélaginu og fjölbreytni þeirra, hvaða fagþekkingu og menntun þarf til að leggja fyrir sig ákveðja starfsgrein. Nemendur fá tækifæri til að kynnast ólíkum starfsgreinum.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
Engar
STAR1JV02Jafnrétti, persóna og virðing

STAR1JV02 - Jafnrétti, persóna og virðing

Nemendur kynnast því hvað einkennir góðan vinnustað og hvernig einstaklingar geta stuðlað að góðri vinnustaðamenningu. Fjallað verður um hvernig jafnrétti allra skiptir máli við að skapa góðan vinnuanda.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
Engar
STAR1RV02Kjaramál, réttindi og skyldur á vinnumarkaði

STAR1RV02 - Kjaramál, réttindi og skyldur á vinnumarkaði

Í áfanganum er fjallað um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Helstu stéttarfélög og hlutverk þeirra eru kynnt. Jafnframt er farið yfir skattamál og skyldur launþega og vinnuveitenda. Nemendur fá tækifæri til að skrifa kynningarbréf og gera ferilskrá. Áfanginn er liður í að efla réttarvitund nemenda.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
Engar
STUÐ1ST01Námsstuðningur

STUÐ1ST01 - Námsstuðningur

Áfanginn er ætlaður nemendum m.a. á framhaldsskólabraut sem þurfa aukinn stuðning í námi. Nemendur fá leiðsögn og aðstoð við verkefnavinnu og stuðning við að skipuleggja og bera ábyrgð á námi sínu. Lögð er áhersla á að auka ábyrgð nemenda á eigin námi og framvindu og efla þar með þátttöku þeirra í skólastarfi.

Einingafjöldi
1
Þrep
1
Forkröfur
Engar
STÆR1AR05Stærðfræðigrunnur 2 - Algebra og rúmfræði

STÆR1AR05 - Stærðfræðigrunnur 2 - Algebra og rúmfræði

Áfanginn er ætlaður þeim sem ná ekki tilskildum árangri í stærðfræði í grunnskóla og er því hugsaður sem undirbúningur fyrir framhaldskólastærðfræði. Hann er kenndur sem hlítarnám og lögð er áhersla á einstaklingsbundið nám þar sem nemendur geta klárað námsefnið á eigin hraða. Í áfanganum er farið yfir talnareikning, algebru og rúmfræði. Enginn munur er á þessum áfanga og STÆR1TJ05 annar en sá að þeir eru kenndir á sitthvorri önninni.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Stærðfræðigrunnur 1 eða C á grunnskólaprófi
STÆR1RE03Stærðfræði með áherslu á reikniaðgerðir

STÆR1RE03 - Stærðfræði með áherslu á reikniaðgerðir

Markmið áfangans er að viðhalda og byggja ofan á þann grunn í stærðfræði sem nemandi hefur þegar tileinkað sér. Í áfanganum verður lögð áhersla á að auka sjálfstraust og sjálfstæði nemanda í stærðfræði þannig að hann geti með góðu móti unnið nokkuð sjálfstætt. Unnið er að því að nemandi verði fær um að nýta kunnáttu sína við lausn viðfangsefna daglegs lífs og leggja grunn að áfamhaldandi stærðfræðinámi. Notuð eru margvísleg verkefni bæði hlutbundin, rituð og tölvuforrit. Viðfangsefnin eru miðuð við getu og þroska hvers nemanda.

Einingafjöldi
3
Þrep
1
Forkröfur
Engar
STÆR1TB03Stærðfræði með áherslu á tölfræði, almenn brot og tugabrot

STÆR1TB03 - Stærðfræði með áherslu á tölfræði, almenn brot og tugabrot

Áfanginn leggur áherslu á að nemendur læri tölfræði m.a. líkindareikning, meðaltal og miðgildi. Einnig fá nemendur þjálfun í að lesa úr ýmsum tegundum rita, svo sem súluritum og stöplaritum. Farið verður yfir það hvernig slík rit birtast m.a. í fjölmiðlum og hvernig þau nýtast okkur í daglegu lífi til að fá yfirsýn yfir mikið magn upplýsinga. Að auki verður unnið að því að byggja áfram ofan á þekkingu nemenda á almennum brotum og tugabrotum.

Einingafjöldi
3
Þrep
1
Forkröfur
Engar
STÆR1TJ05Stærðfræðigrunnur 1

STÆR1TJ05 - Stærðfræðigrunnur 1

Áfanginn er ætlaður þeim sem ná ekki tilskildum árangri í stærðfræði í grunnskóla sem undirbúningur fyrir framhaldskólastærðfræði. Hann er kenndur sem hlítarnám og lögð er áhersla á einstaklingsbundið nám þar sem nemendur geta klárað námsefnið á eigin hraða. Í áfanganum er farið yfir talnareikning, algebru og rúmfræði. Enginn munur er á þessum áfanga og STÆR1AR05 annar sá að þeir eru kenndir sinn á hvorri önninni.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Engar
STÆR1TM03Stærðfræði með áherslu á tímahugtök og rúmfræði

STÆR1TM03 - Stærðfræði með áherslu á tímahugtök og rúmfræði

Áhersla verður á tímahugtök og unnið verður með þau á fjölbreyttan hátt. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér. Einnig er unnið með með mælingar líkt og þyngd, lengd, flatarmál, ummál og rúmmál. Nemendur læra að nýta sér metrakerfið við verkefnin.

Einingafjöldi
3
Þrep
1
Forkröfur
Engar
STÆR2FG05Algebra og föll

STÆR2FG05 - Algebra og föll

Meginefni áfangans er algebra margliða og föll. Áhersla er lögð á stærðfræðileg vinnubrögð, framsetningu lausna og nákvæmni.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
B á grunnskólaprófi
STÆR2HV05Hornaföll og vigrar

STÆR2HV05 - Hornaföll og vigrar

Í áfanganum er unnið með hornafræði þríhyrninga og hornaföll. Fjallað er um tengsl algebru og rúmfræði í hnitakerfi, og vigra í sléttu. Áhersla er lögð á skilgreiningar, sannanir og notkun forrita við teikningar og lausnir verkefna.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
STÆR2FG05
STÆR2TL05Tölfræði og líkindareikningur

STÆR2TL05 - Tölfræði og líkindareikningur

Í áfanganum er fjallað um töluleg gögn og myndræna framsetningu þeirra. Einnig er farið í einkennistölur gagnasafna, s.s. miðsækni og deifingu. Fjallað er um líkindareikning, normaldreifingu og fylgni. Unnið er með gagnasafn þar sem unnið er úr helstu einkennistölum þess.

Einingafjöldi
5
Þrep
2
Forkröfur
B á grunnskólaprófi
STÆR3ÁT05Ályktunartölfræði

STÆR3ÁT05 - Ályktunartölfræði

Í áfanganum fjallað um ályktandi tölfræði. Farið er í grunnatriði úrtaksfræðinnar og þeirra aðferða sem notaðar eru til að draga ályktanir um þýði á grundvelli úrtaks. Fjallað er um tilgátuprófun, s.s z-próf, t-próf, kí-kvaðratpróf og fylgnipróf. Lögð er áhersla vinnslu gagnasafna og notkun töflureikna.

Einingafjöldi
5
Þrep
3
Forkröfur
STÆR2TL05
STÆR3DF05Föll og afleiður þeirra

STÆR3DF05 - Föll og afleiður þeirra

Efni áfangans er um helstu gerðir falla og afleiður þeirra. Fjallað er um deildun og markgildi í sögulegu samhengi og lögð fyrir verkefni sem leysa má með deildareikningi. Áhersla er lögð á að nemendur fái góða innsýn í deildareikning og geti rökstutt og sýnt fram á helstu reglur þar að lútandi.

Einingafjöldi
5
Þrep
3
Forkröfur
STÆR2HV05
STÆR3DH05Deildajöfnur og heildi

STÆR3DH05 - Deildajöfnur og heildi

Unnið er með stofnföll falla, óákveðið og ákveðið heildi og heildunaraðferðir. Deildajöfnur af fyrsta stigi eru skoðaðar, einnig runur og raðir.

Einingafjöldi
5
Þrep
3
Forkröfur
STÆR3DF05
TILV1ÁF02Tilvera með áherslu á átthagafræði

TILV1ÁF02 - Tilvera með áherslu á átthagafræði

Í áfanganum er nemendum ætlað að kynnast nærumhverfi sínu. Áhersla verður lögð á staðhætti, náttúru, atvinnulíf og sjáfbærni í nærumhvefinu.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
Engar
TILV1FL02Tilveran með áherslu á fjármálalæsi

TILV1FL02 - Tilveran með áherslu á fjármálalæsi

Í áfanganum er unnið að því að gera nemendur meðvitaða fjármál, peninga og hlutverk þeirra í daglegu lífi. Farið er í laun og frádrátt og hvert hann fer, rekstur heimilis og bíls, notkun greiðslukorta, gengi og gjaldeyri og fleira sem snertir fjárhagslegar skuldbindingar sem nemendur þurfa að takast á hendur. Einnig verður farið í heimilisbókhald og mikilvægi þess að halda utan um tekjur og gjöld. Markmið áfangans er að gera nemendur að öllu eða einhverju leiti fjárhagslega sjálfbjarga í raunverulegum aðstæðum.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
Engar
TILV1LS02Tilveran með áherslu á lýðræði og stjórnarfar

TILV1LS02 - Tilveran með áherslu á lýðræði og stjórnarfar

Áfanginn fjallar um mannréttindi, stjórnarfar og lýðræði. Nemendur kynnast því hvaða réttindi og skyldur fylgja því að búa í lýðræðissamfélagi. Viðfangsefni áfangans eru borgaraleg réttindi, völd og áhrif einstaklinga auk þess sem samanburður er á milli stjórnarfars á Íslandi og annarra ríkja.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
Engar
TILV1SF02Tilvera með áherslu á líðandi stund, fjölmiðla og samfélagsmiðla

TILV1SF02 - Tilvera með áherslu á líðandi stund, fjölmiðla og samfélagsmiðla

Áfanginn fjallar um samfélagsmiðla, fjölmiðla og dægurmál. Notkunarmöguleikar, kostir og gallar miðlanna eru teknir fyrir. Fylgst er með fréttum líðandi stundar. Leitast er við að styrkja nemendur í að vera gagnrýnir og virkir þátttakendur í jafnréttis og lýðæðissamfélagi.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
Engar
TILV1SM02Tilvera með áherslu á samskipti, virðingu og mannréttindi

TILV1SM02 - Tilvera með áherslu á samskipti, virðingu og mannréttindi

Áfanginn fjallar um almenn samskipti samskiptareglur, virðingu fyrir öðrum og almenn mannréttindi.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
Engar
TILV1SU02Tilveran með áherslu á sjálfbærni og umhverfisvitund

TILV1SU02 - Tilveran með áherslu á sjálfbærni og umhverfisvitund

Áhersla er á sjálfbærni og umhverfisvitund. Farið verður yfir fjölbreytta sýn á aðstæður og umhverfi ungs fólks í dag og hvernig hugtakið sjálfbærni kemur fyrir í daglegu lífi. Nemendur kynnast helstu umhverfisvandamálum sem við glímum við í heiminum og hvað við getum lagt af mörkum til jákvæðari þróunar. Nemendur verða hvattir til að velta því fyrir sér hvað móti tengsl manns og náttúru.

Einingafjöldi
2
Þrep
1
Forkröfur
Engar
TÓMS1LV01Tómstundir - lýðræði og virkni

TÓMS1LV01 - Tómstundir - lýðræði og virkni

Tómstundaáfanginn er samtvinnaður nemendafélagi skólans og er markmiðið með honum að efla félagslífið og virkja fleiri nemendur við skipulagningu viðburða. Nemandi velur sér áhugasvið / klúbb til að starfa með á önninni. Klúbbsfélagar koma sér saman um minnst einn reglulegan fundartíma í viku þar sem skráð er fundargerð. Grundvallarmarkmið hvers klúbbs er að halda minnst einn viðburð eða skila einni afurð á önn. Einstakir viðburðir eða röð viðburða skulu tímasettir og auglýstir innan skólans. Nemandi getur með virkri þátttöku í klúbbastarfi unnið sér inn einingu við lok annar. Nemandi á möguleika á einingu fyrir vinnu sína í tómstundaáfanga á hverri námsönn.

Einingafjöldi
1
Þrep
1
Forkröfur
Engar
VERK3VR05Verkefnaáfangi í félags- og náttúruvísindum

VERK3VR05 - Verkefnaáfangi í félags- og náttúruvísindum

Að jafnaði skal miðað við að áfanginn sé tekinn undir lok náms, t. d. á lokaönn. Í áfanganum vinna nemendur rannsóknarverkefni þar sem þeir beita vinnulagi þess sviðs sem þeir hafa valið sér. Val á verkefni er ákveðið í samráði við kennara og ræðst af fyrra námi og áhugasviði. Frá því má þó víkja ef rík ástæða er til. Gerðar eru miklar kröfur um sjálfstæð vinnubrögð. Nemendur nýta fyrri þekkingu og skilning við vinnslu rannsóknarverkefnis síns. Þeir kynna niðurstöður sínar opinberlega.

Einingafjöldi
5
Þrep
3
Forkröfur
Tekið á næstsíðustu eða síðustu önn stúdentsnáms
VINS1RV10Vinnustaðarnám 1 - Vinnumarkaður

VINS1RV10 - Vinnustaðarnám 1 - Vinnumarkaður

Áfanginn byggir á að nemendur öðlist þekkingu og færni á hinum almenna vinnumarkaði. Nemendur sem eru í starfi, meðfram námi, hafa tök á að sækja þennan áfanga. Áfanginn byggir á vinnuframlagi nemandans á vinnustað og verkefnum sem tengjast vinnumarkaði sem og reglulegum dagbókarskrifum. Skólinn hefur frumkvæði að því að koma á þríhliða samkomulagi nemanda, vinnustaðar og skóla um framkvæmd og tilhögun áfangans.

Einingafjöldi
10
Þrep
1
Forkröfur
Engar
ÞEMA1OD01Opnir dagar

ÞEMA1OD01 - Opnir dagar

Opnir dagar eru skipulagðir innan skólans sem sjálfstæð og einingabær vinna. Á þeim tíma leggst hefðbundin kennsla niður og nemendur vinna í hópum við valin viðfangsefni í þrjá daga (20 klst). Viðfangsefnin ákveða nemendur í samráði við skólann með góðum fyrirvara og undirbúningur hefst strax við upphaf annar. Nemendur skipuleggja og sjá um framkvæmd viðfangsefna á opnum dögum og eru kennarar þeim til aðstoðar og til að veita leiðbeiningar.

Einingafjöldi
1
Þrep
1
Forkröfur
Engar
ÞEMA1VD01Vísindadagar

ÞEMA1VD01 - Vísindadagar

Vísindadagar eru skipulagðir innan skólans sem sjálfstæð og einingabær vinna. Á þeim tíma leggst hefðbundin kennsla niður og nemendur vinna í hópum við valin viðfangsefni í þrjá daga (20 klst). Viðfangsefnin eru ákveðin með góðum fyrirvara og undirbúningur hefst strax við upphaf annar. Markmiðið með vísindadögum er að nemendur kynnist því hvað til þarf svo hægt sé að svara á vísindalegan hátt áleitnum spurningum, jafnvel úr daglegu lífi og umhverfi.

Einingafjöldi
1
Þrep
1
Forkröfur
Engar
ÞÝSK1GF05Framburður og orðaforði

ÞÝSK1GF05 - Framburður og orðaforði

Áfanginn er byrjunaráfangi. Nemendur fá innsýn í menningu og staðhætti á þýska mál- og menningarsvæðinu og kynnast samskiptavenjum og siðum. Nemendur eru þjálfaðir í öllum málfærniþáttum: tali, hlustun, ritun og lesskilningi. Áhersla er lögð á framburð, grunnatriði málnotkunar og uppbyggingu orðaforða sem tengist nemandanum og hans nánasta umhverfi. Þessi áfangi er á stigi A1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
Engar
ÞÝSK1MÁ05Orðaforði og málnotkun

ÞÝSK1MÁ05 - Orðaforði og málnotkun

Helstu atriði undanfarans eru rifjuð upp um leið og bætt er við orðaforða og málfræði. Áhersla er lögð á að þjálfa áfram alla málfærniþætti: munnlega og skriflega tjáningu, hlustun og lesskilning. Unnið er með orðaforða sem tengist nánasta umhverfi nemandans, daglegum athöfnum og ferðalögum (t.d. að spyrja og segja til vegar). Þá eru nemendur einnig þjálfaðir í að segja frá liðnum atburðum. Menningu og staðháttum þýskumælandi landa er fléttað inn í kennsluna m.a. í gegnum lestur viðeigandi texta sem varpa ljósi á daglegt líf. Þá mun nemendum verða leiðbeint í notkun orðabóka og annarra hjálpargagna við tungumálanámið. Þessi áfangi er á stigi A1 í evrópska tungumálarammanum.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
ÞÝSK1GF05
ÞÝSK1SM05Málnotkun og lestur

ÞÝSK1SM05 - Málnotkun og lestur

Áherslan er á nánasta umhverfi nemandans: heimilið, matur, tíska og smekkur, skólinn og starfið. Í tengslum við þessi þemu er siðum og samskiptavenjum í þýskumælandi löndum fléttað inn í kennsluna. Nemendur eru áfram þjálfaðir í öllum málfærniþáttum, hlustun, lesskilningi, ritun og tali með aukinni áherslu á tjáningu. Ný og flóknari málfræðiatriði eru tekin fyrir. Jafnframt eru gerðar meiri kröfur um að nemendur tileinki sér fjölbreyttan orðaforða með lestri lengri texta. Viðfangsefni í þessum áfanga eru á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Einingafjöldi
5
Þrep
1
Forkröfur
ÞÝSK1MÁ05
Birt með fyrirvara um breytingar og villur.

Fréttaflokkar

  • Fréttir
  • Covid-19
  • Stoðþjónusta
  • Tilkynningar