Óflokkað

Vísindadagar fram undan í FAS

Næsta mánudag hefjast svokallaðir vísindadagar í FAS. Þá eru námsgögn sett til hliðar um sinn og nemendur vinna í hópum að öðrum verkefnum. Vísindadagar standa yfir í þrjá daga og á þeim tíma þurfa nemendur að rannsaka ákveðið efni, rökstyðja og síðast en ekki síst miðla upplýsingum til samnemenda sinna.

Viðfangsefni vísindadaga að þessu sinni er „Framtíð Hornafjarðar 2035“. Ætlunin er að nemendur skoði tiltekin heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og safni um þau upplýsingum, greini gögn og meti heimildir. Á degi tvö þurfa nemendur að vinna úr gögnunum og á þriðja og síðasta degi vísindadaga er komið að því að sýna afrakstur vinnunnar. Að þessu sinni eru nemendur hvattir til að nýta sér gervigreind við vinnuna.

Það verður bæði gaman og fróðlegt að fylgjast með vinnunni á vísindadögum í næstu viku. Nemendur ættu nú að hafa fengið sendan í tölvupósti skráningarhlekk fyrir vísindadagana og eru þeir beðnir um að bregðast við sem fyrst.

Meðfylgjand mynd sýnir Guðjón Ragnar skólameistara fara yfir upplegg og dagskrá vísindadaga.