Fréttir frá Danmerkurförum
Í síðustu viku sögðum við frá væntanlegu ferðalagi nemendahóps frá FAS til Ringsted í Danmörku en hópurinn dvelur þar þessa vikuna við störf og leik.
Það er skemmst frá því að segja að ferðalagið til Danmerkur gekk vel en var bæði langt og nokkuð strembið. Dagskrá hófst strax á mánudag. Húsasmíðanemar teiknuðu upp bekk og mældu út fyrir honum. Verkstæðisnemar á starfsbraut söguðu út jólaskraut meðan nemar í eldhúsi elduðu frikadeller og gúrkusalat sem var boðið upp á á starfsbraut í hádeginu. Þessa vikuna munu nemendur fylgja dagskrá á skólatíma en seinni hluta dagsins gefst tími til að skoða sig um í bænum, stunda íþróttir og síðast en ekki síst til að kynnast öðrum nemendum skólans og þá sérstaklega þeim sem eru á heimavistinnni þar sem við dveljum.
Þessi dvöl er greinilega mikil upplifun fyrir nemendur okkar og þau munu koma heim reynslunni ríkari. Hópurinn flýgur til Íslands á laugardag og mun koma til Hafnar seint þann dag.
Hér má sjá nokkrar myndir frá ferðinni. Eins og sést er nóg um að vera hjá okkar fólki.