Óflokkað

Fleiri fréttir frá Danmörku

Heimsókn til AffaldPlus í Danmörku

Nemendur af smíðabraut, bæði íslenskir og danskir ásamt kennurum frá báðum löndum heimsóttu í vikunni AffaldPlus í Næstved í Danmörku. AffaldPlus er í eigu sex sveitarfélaga á Suður- og Vestur-Sjálandi og sér um meðhöndlun úrgangs, endurvinnslu, endurnýtingu og orkuframleiðslu. Fyrirtækið rekur meðal annars 19 endurvinnslustöðvar ásamt endurnýtingarverslunum.

AffaldPlus gegnir mikilvægu hlutverki í úrgangsmálum á svæðinu og þjónustar bæði heimili og fyrirtæki. Meginmarkmið fyrirtækisins er að draga úr sóun, stuðla að ábyrgri nýtingu auðlinda og tryggja að sem mest af úrgangi fari í endurvinnslu eða endurnýtingu. Með starfsemi sinni leggur fyrirtækið áherslu á hringrásarhagkerfið, þar sem vörur og hráefni eru nýtt eins lengi og mögulegt er í stað þess að þeim sé fargað.

Í heimsókninni fékk hópurinn leiðsögn um sorpbrennslu- og orkuvinnslustöð fyrirtækisins þar sem starfsmaður kynnti starfsemina og útskýrði hvernig unnið er með úrgang, allt frá móttöku til brennslu. Á stöðinni eru árlega brennd um 130.000 tonn af úrgangi sem ekki hentar til endurvinnslu. Orkan sem myndast við brennsluna er nýtt til framleiðslu á rafmagni og hitaveitu fyrir nærliggjandi svæði. Það er frábært að sjá hvernig er hægt búa til orku úr úrgangi.

Hópurinn fékk einnig að skoða PlusByg, endurnýtingarverslun á vegum AffaldPlus, þar sem notuð byggingarefni, verkfæri og aðrir nytjahlutir eru seldir áfram í stað þess að enda sem úrgangur. AffaldPlus rekur einnig PlusButikken, þar sem ýmsir notaðir heimilismunir fá nýtt líf. Árið 2025 fengu tæplega 3.000 tonn af hlutum nýtt hlutverk í verslunum fyrirtækisins.

Heimsóknin var fróðleg og gaf nemendum og kennurum góða innsýn í mikilvægi endurvinnslu, endurnýtingar og ábyrgrar nýtingar auðlinda.

Hér má sjá nokkrar myndir frá ferðinni