Ástráður – hvað er nú það?
Í dag fengum við til okkar góðan gest sem er okkur flestum ágætlega kunn. Það er hún Anna Lára Grétarsdóttir sem er fyrrverandi nemandi okkar. Hún er nú á öðru ári í læknisfræði við Háskóla Íslands og segir námið bæði skemmtilegt og spennandi.
En nemendur í læknisfræði fást við margt fleira en bara að stunda námið. Þeir sjá um alls konar fræðslu og það er einmitt ástæðan fyrir heimsókn Önnu Láru í dag. Hún er hér komin á vegum Ástráðs sem er kynfræðslufélag læknanema og var stofnað árið 2000 af læknanemum við Háskóla Íslands. Árlega heldur félagið fyrirlestra fyrir nemendur í framhaldsskólum landsins. Fræðslunni sinna 2. árs læknanemar, eftir að hafa tekið þátt í fræðsluviku á vegum Ástráðs, þar sem verðandi fræðarar sitja fyrirlestra ýmissa fagaðila og samtaka sem koma að kynheilbrigði. Við í FAS höfum fengið heimsókn frá Ástráði á tveggja ára fresti og þá fá fyrsta og annars árs nemendur fræðslu.
Í fræðslunni er lögð áhersla á heilbrigð samskipti og það er fjallað um fjölbreyttar getnaðarvarnir, kynsjúkdóma, úrræði sem ungmenni geta nýtt sér og margt fleira. Fræðslan er á jafningjagrundvelli – ætluð öllum, óháð kyni, kynvitund og kynhneigð. Ástráður heldur úti vefsíðu þar sem einnig er að finna alls konar upplýsingar um félagið sem og fræðsluefni.
Það var mikið gaman að sjá Önnu Láru aftur hjá okkur í FAS og við þökkum henni kærlega fyrir kynninguna og heimsóknina.