Óflokkað

Fréttir frá FAS

Við höfum ekki farið varhluta af því að það hafa verið gerðar tölvuárásir á ýmis fyrirtæki og stofnanir undanfarið. Ein slík árás setti niður heimasíðu FAS í síðustu viku en nú er hún komin í lag.

Í þessari viku hefur verið mikið um að vera. Jólaljós og ýmis komar skraut var sett upp í Nýheimum á miðvikudag og einhverjir fóru út í Óslandstjörn að veiða með svifháf til að skoða hvaða líf er að finna í tjörninni. Á miðvikudag fóru líka nokkrir nemendur með skólameistara á sjálfbærniráðstefnu á Hala.

Hápunktur vikunnar er þó án nokkurs vafa „Kótilettukvöld kynslóðanna“. Hugmyndin að þessu kvöldi kviknaði eftir að forseti Íslands boðaði til fundaraða fyrr í haust með ungmennum. Fundaröðin bar yfirskriftina „Samtal kynslóðanna“. FAS sá sér ekki fært að taka þátt á þeim tíma en ákvað þess í stað efna til samtals yfir málsverði. Hugmyndin þróaðist áfram og kótilettur með tilheyrandi urðu fyrir valinu. Það er skemmst frá því að segja að hugmyndin sló í gegn meðal íbúa. Í gærkvöldi komu rúmlega 120 manns á Nýtorg til að gæða sér á kræsilegum kótilettum og eiga góða stund saman. Foreldrafélag FAS hélt utan um viðburðinn og sá um eldamennsku ásamt einvala liði nemenda og starfsfólks. Albert Eymundsson stjórnaði samkomunni eins og honum einum er lagið. Ágóði af kvöldinu rennur óskiptur í ferðasjóð nemenda.

Við erum afskaplega þakklát fyrir góðar móttökur og hlýhug Hornfirðinga í garð skólans. Víð tókum vel eftir því í gær að þessi vettvangur er góð leið til efla samskipti kynslóðanna. Sérstakar þakkir fá bændurnir í Akurnesi og á Seljavöllum fyrir kartöflurnar og Efnalaug Dóru sem lánaði okkur dúka endurgjaldslaust. Stefnt er því að endurtaka leikinn á vormisseri.

Hér má sjá nokkrar myndir frá vikunni.