Flottir frumkvöðlar á Heppunni
Á miðvikudag var komið að síðasta uppbroti annarinnar undir merkjum HeimaHafnar. Það var að þessu sinni haldið á veitingastaðnum á Heppunni. Þema HeimaHafnar á þessu ári er nýsköpun og frumkvöðlastarf og í dag komu nokkrir frumkvöðlar og sögðu frá verkefnum.
Þegar nemendur mættu á staðinn biðu þeirra dýrindis kræsingar að hætti Heppunnar, þar á meðal hinir sívinsælu dólgar sem eru ekki á boðstólum á hverjum degi.
Fyrstur til að segja frá frumkvöðlaverkefnum var Þorgrímur Tjörvi sem er allt í öllu á Heppunni og hefur orðið mikla reynslu að vinna með nýjar hugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd. Þar ber fyrst að nefna veitingastaðinn sem býður upp á alls konar spennandi veitingar sem er ekki að finna hvar sem er. Hann sagði líka frá tilurð jöklasýningarinnar „Jöklar Hafnar“ sem opnaði í ágúst síðastliðnum. Þar er m.a. hægt að fræðast um loftslagsbreytingar af manna völdum í gegnum sýndarveruleika. Það fengu allir að skoða jöklasýninguna og það var samdóma álit að hún sé bæði skemmtileg og fræðandi. Að síðustu sagði Þorgrímur frá brugghúsinu sem er starfrækt í húsnæðinu.
Næst til að segja frá sínu frumkvöðlaverkefnum var Alice Sowa sem býr í Öræfunum. Hún er að prófa sig áfram með náttúrulegar afurðir. Annars vegar er hún að búa til lífrænan áburð úr úrgangsull sauðfjárbænda og býr til úr þeim það sem hún kallar ullarköggla. Hins vegur vinnur hún með lúpínu sem hún notar m.a. til að lita ullargarn og er einnig að prófa sig áfram með að vinna þræði úr lúpínunni. Fljótlega verður hægt að lesa meira um hennar verkefni á https://graenalaut.is/
Síðastur til að segja frá sínu frumkvöðlastarfi var Haukur Ingi hjá „Glacier Adventures“. Hann sagði m.a. annars frá því hvernig hann hefði byrjað smátt og hvernig fyrirtækið hans er smám saman að stækka og bæta við sig verkefnum. Hann hefur alla tíð lagt mikla áherslu á sjálfbærni og að miðla upplýsingum um jökla og loftslagsbreytingar til sinna viðskiptavina. Núna býður fyrirtækið hans upp á gistingu á Hala og næsta nýjung er að bjóða upp á kennslu á dróna þar sem er verið að taka landslagsmyndir.
Öll lögðu þau mikla áherslu á að ef einhver hafi góða hugmynd sé mikilvægt að hrinda henni í framkvæmd. Það sé þó mikilvægt að hafa gott tengslanet í kringum sig, bæði til að þróa hugmyndir áfram og eins til að styðja við hugmyndina. Það kom fram í máli þeirra að það sé allt í lagi þó einhverjar hugmyndir gangi ekki eftir en mikilvægt að gefast þó ekki upp. Eins sögðu þau frá því að það er ekki nóg að hafa góða hugmynd. Það þarf líka að útfæra hana og gera viðskiptaáætlun yfir kostnaðarliði. Þau sögðu að það væri mikilvægt að standa sig vel í námi og safna reynslu, ma.a. með því að vinna á mismunandi stöðum. Allt fari í reynslubankann sem gott geti verið að byggja á í framtíðinni.
Á leiðinni út af veitingastaðnum fengum við að kíkja aðeins í brugghúsið og Þorgrímur sagði frá því hvað þarf til og hvernig bjór er bruggaður. Þar er líka lögð áhersla á sjálfbærni og endurnýtingu. Sem dæmi má nefna að þegar búið er að nota byggið nýtist það sem fóður fyrir nautgripi.
Í lokin lagði Nejra fyrir nokkrar spurningar á Kahoot. Svo skemmtilega vildi til að Gísli Ólafur sem átti afmæli sigraði Kahoot keppnina og fékk verðlaun. Hann fékk líka að sjálfsögðu afmælissöng.
Við þökkum kærlega fyrir skemmtilega og fræðandi stund og ekki síður góðan mat. Og ef það er einhver sem er með góða hugmynd að þá á alls ekki að stinga henni undir koddann heldur finna leið til að hrinda henni í framkvæmd. Það er fullt af fólki sem er tilbúið til að aðstoða ef þarf.