Jökullinn í sýndarveruleika
Við segjum oft að Vatnajökull og skriðjöklar hans séu í bakgarðinum hjá okkur á suðausturhorninu. Það er sannarlega einstakt fyrir framhaldsskóla að hafa jökulinn svo nálægt enda fara allir staðnemendur á stúdentsbrautum í FAS einhvern tímann í náminu að Heinabergsjökli til að skoða ummerki og landmótun eftir jökulinn.
Í sumar bættist við nýr möguleiki á því að skoða jökulinn þegar sýningin „Glaciers of Höfn“ opnaði í húsnæði veitingastaðarins Heppunnar. Sýningin er í raun staðsett í gömlu frystirými sem tilheyrði sláturhúsinu sem þá var. Sýningin hefur verið í undirbúningi í nokkurn tíma þar sem m.a. hefur verið leitað til fræði- og vísindamanna. Smám saman þróaðist sýningin yfir í sýndarveruleika þar sem aðalmarkmiðið er að fræða fólk og sýna þær breytingar sem eru að eiga sér stað á jöklum landsins vegna loftslagsbreytinga.
Staðnemendur í inngangsáfanga að náttúruvísindum fengu í síðustu viku tækifæri til að skoða sýninguna. Með hópnum fór Þorvarður Árnason forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði en hann er einn þeirra sem stendur að sýningunni. Nemendahópnum frá FAS var skipt í tvennt. Á meðan annar hópurinn skoðaði sýninguna með sýndarveruleikagleraugum leiddi Þorvaður hinn hópinn um sýningarrýmið og sagði frá. Það er skemmst frá því að segja að nemendum fannst sýningin mjög góð, bæði gott og gagnlegt að fá að vita meira um þennan nágranna okkar.
Það er margs konar fróðleikur á jöklasýningunni. Það er hægt að horfa á myndband í litlum sal. Þá eru mörg veggspjöld með upplýsingum um jökulinn og einnig töluvert af myndum. Einnig er hægt að sjá jöklamýs. Hér má sjá nokkrar myndir frá heimsókninni.
Við þökkum kærlega fyrir að fá að skoða þessa flottu sýningu og sérstaklega færum við Þorvarði þakkir fyrir að koma og segja frá. Jafnframt hvetjum við alla til að fara í Heppuna og skoða sýninguna og um leið þær gríðarlegu breytingar sem eru að eiga sér stað af völdum hnattrænna loftslagsbreytinga.