Alls konar um að vera í FAS
Það er alltaf nóg um að vera í FAS og á það bæði við um skólann og lífið þar fyrir utan. Á föstudag stendur mikið til. Þá ætlar þorri nemenda ásamt kennurum að fara í heimsókn í VA á Norðfirði til að taka þátt í Austfirsku Ólympíuleikunum en það er keppni í ekki svo mjög hefðbundnum íþróttum. Auk nemenda frá FAS koma nemendur frá Menntaskólanum á Egilsstöðum til að taka þátt í leikunum. Kennarar ætla að hittast á meðan leikarnir standa yfir og sinna endurmenntun. Þeir sem ekki eru skráðir í lið verða í klappliði FAS. Fyrr í þessari viku var ein vinnustund nýtt til að merkja boli sem klapplið FAS ætlar að klæðast á leikunum.
Þá var fyrr í þessari viku forval fyrir Gettu betur. Það voru 10 nemendur sem mættu í inntökuprófið; sex drengir og fjórar stelpur. Það próf er notað til að búa til eitt keppnislið og annað pressulið. Keppnislið FAS skipa: Birta Ósk Sigbjörnsdóttir, Eyrún Stína Skagalín Guðmundsdóttir og Sigurður Gunnlaugsson. Pressuliðið skipa: Áskell Vigfússon, Bryndís Jóna Valdimarsdóttir og Alex Leví Gunnarsson. Til að þjálfa liðið höfum við fengið fyrrum nemanda okkar Sigurð Óskar Jónsson en hann var á sínum tíma í keppnisliði FAS.