Hornafjörður: Samfélagið mitt

Námskeiðið er ætlað íbúum af erlendum uppruna á Hornafirði sem vilja kynnast samfélaginu betur og styrkja tengsl sín við nærumhverfið.

Áhersla er lögð á að kynna menningu, mannlíf og þjónustu á svæðinu, svo sem sveitarfélagið, heilbrigðisþjónustu, vinnumarkað, félagasamtök, náttúru og tækifæri til þátttöku í samfélaginu. Nemendur fá hagnýtar upplýsingar um réttindi sín og skyldur og kynnast þeim stuðningi sem stendur til boða.

Markmið námskeiðsins er að auðvelda þátttakendum að verða virkir þátttakendur í samfélaginu og finna sig sem hluta af hornfirsku stórfjölskyldunni.

Námskeiðið er unnið í samstarfi við Sveitarfélagið Hornafjörð og byggir á því að tengja þátttakendur við samfélagið, þjónustu þess og þau tækifæri sem það hefur upp á að bjóða.

Námskeiðið er tvímála og fer kennslan fram jafnt á íslensku og ensku.

This course is intended for residents of foreign origin in Hornafjörður who wish to become more familiar with their local community and strengthen their connection to it.

The course introduces participants to the culture, daily life, and services available in the area, including local government, healthcare, the labour market, voluntary organisations, nature, and opportunities for community participation. Participants will receive practical information about their rights and responsibilities and learn about the support and services available to them.

The aim of the course is to help participants become active members of the community and feel welcomed as part of the Hornafjörður extended family.

The course is developed in collaboration with Hornafjörður Municipality and aims to connect participants with the community, its services, and the opportunities it has to offer.

The course is bilingual and will be taught in both Icelandic and English.

FÉLA2SM05 – Hornafjörður: Samfélagið mitt
Umsókn um
Leyfi

Fréttaflokkar

  • Fréttir
  • Covid-19
  • Stoðþjónusta
  • Tilkynningar