Forvarnadagur í FAS – 5. maí
Þann 5. maí nk. fer fram forvarnadagur í FAS. Hluti af honum verður sviðsetning á umferðarslysi þar sem nemendur fá að fylgjast með hvernig starf viðbragðsaðila á vettvangi fer fram.
Til að tryggja aðgengi og öryggi áhorfenda og viðbragðsaðila verður hluta af Sandbakkavegar vestan við Nýheima lokað á meðan sviðsetning fer fram.
Lokunin ætti ekki að hafa mikil áhrif á íbúa þar sem einungis þarf að loka götunni fyrir framan skólann. Búast má við að lokað verði á milli 12:00 og 15:00.
Öllum er velkomið að fylgjast með ef áhugi er fyrir hendi en við biðjum ykkur að fara ekki of nálægt sviðsetta slysinu heldur koma ykkur fyrir hjá nemendum og hlusta á fulltrúa lögreglu útskýra fyrir okkur öllum hvernig lögregla, slökkvilið og sjúkraflutningamenn vinna saman á vettvangi.
Hér er hlekkur á viðburðinn á Facebook.