Óflokkað

Umhverfið snurfusað í lok vetrar

Á morgun fögnum við sumri og þá vilja flest okkar hafa umhverfið hreint og fínt. Margir nota hluta dagsins til að tína saman rusl sem hefur verið hent frá sér eða fokið og fundið sér stað.

Oft hefur starfsfólk í ráðhúsinu og nemendur og starfsfólk í FAS tekið saman höndum því margar hendur vinna jú létt verk. Svo var gert í dag. Það var byrjað að bjóða upp á grillaðar pylsur og vinnustund síðan notuð til að hreinsa til. Það er ýmislegt sem kemur í ljós þegar farið er að horfa í kringum sig en hvað hvimleiðast er að sjá tyggjóklessur sem er spýtt út úr sér þar sem fólk stendur. Sama á við um niktótínpúða og sígarettustubba.

Það verður allt svo betra þegar umhverfið er fegrað. Við viljum líka minna á að sunnudagurinn 26. apríl næstkomandi er tileinkaður ruslasöfnun um allt land og hvetjum við alla til að leggja sitt af mörkum til að plokka rusl.

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn.

Hér má sjá nokkrar myndir frá hreinsuninni í dag.