Mikið um að vera á forvarnardeginum
Það hefur verið margt um manninn og mikið um að vera á forvarnardegi FAS. Þessi dagur er sérstaklega ætlaður fyrir nemendur FAS og nemendur í 10. bekk. Markmiðið með þessum degi er að auka öryggisvitund og hjálpa ungum ökumönnum og væntanlegum ökumönnum að taka betri ákvarðanir í umferðinni. Og vita hvernig eigi að bregðast við ef komið er að slysi.
Fyrir hádegi var fræðsla um umferðaröryggi, áhættu í akstri og hvernig eigi að bregðast við slysum. Á staðnum var „veltibíll“ þar sem nemendur gátu prófað hvernig það er að vera í bíl sem veltur og fer á hvolf. Einnig var fjallað um hversu hratt eldur getur brotist út og hvernig eigi að bregðast við slíkum aðstæðum.
Í hádeginu voru grillaðir hamborgarar sem voru gerð góð skil.
Eftir hádegið var svo sviðsett umferðarslys þar sem viðbragðsaðilar á svæðinu tóku þátt. Í byrjun var spilað upptekið samtal við Neyðarlínuna þar sem slysið var tilkynnt. Í framhaldinu mættu viðbragðsaðilar hver á eftir öðrum. Lögreglumaður lýsti því sem fyrir augu bar og sagði frá því hvernig viðbragðsaðilar vinna sín verk. Farið var yfir stöðuna lið fyrir lið allt þangað til að búið var að koma hinum „slösuðu“ á leið á bráðamóttökuna.
Nemendur voru mjög sáttir með daginn og sögðu að dagurinn hefði verið bæði fróðlegur og gagnlegur. Og þá er tilgangnum náð.
Bestu þakkir til allra viðbragðsaðila, það er frábært að sjá hversu öflugan hóp viðbragðsaðila við höfum í sveitarfélaginu okkar. Styrktaraðilar fá einnig bestu þakkir.