
Útskriftarnemendur
Nemendur sem stefna á útskrift þurfa að sækja um útskrift á þeirri önn sem útskrift á að fara fram. Sótt er um útskrift hér: tengill
Staðnemar sem ætla að útskrifast þurfa einnig að skrá sig í áfangann NÁSS2MÁ01. Áfanginn er eingöngu kenndur á vorönn, og því er mikilvægt að þeir sem hyggjast útskrifast um jól skrái sig í hann á vorönninni áður en útskrift fer fram.
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur skoði hvar áhugasvið þeirra liggja og ígrundi hugmyndir sínar um nám og störf. Markmiðið er að auðvelda þeim að taka upplýstar ákvarðanir sem taka mið af eigin áhuga og markmiðum. Auk þess fá nemendur fræðslu um vinnuumhverfi, réttindi og skyldur á vinnumarkaði.