Nýnemafræðsla

Nýnemafræðsla

Nýnemar í staðnámi frá skipulagða nýnemafræðslu í áföngunum INGF1HÖ01 og INGF1VÖ01 sem kenndir eru einu sinni í viku á haustönn og vorönn.
Í nýnemafræðslunni er lögð áhersla á að nemendur aðlagist vel nýju skólastigi og skólaumhverfi, læri aðferðir til að skipuleggja tíma og nám, árangursríkar námsaðferðir, leiðir til að takast á við álag og  kynnist stoðþjónustu skólans. Í áfanganum eru einnig kenndar leiðir til að efla sjálfsþekkingu og verða meðvitaðri um styrkleika sína, áhugasvið og hamingju.

Staðnemendur á framhaldsskólabraut sitja að auki áfangann STUÐ1ST01. Í áfanganum fá nemendur  leiðsögn og aðstoð við verkefnavinnu og stuðning við að skipuleggja og bera ábyrgð á námi sínu. Lögð er áhersla á að auka ábyrgð nemenda á eigin námi og framvindu og efla þar með þátttöku þeirra í skólastarfi.

Fréttaflokkar

  • Fréttir
  • Covid-19
  • Stoðþjónusta
  • Tilkynningar