Sálfræðingur

Nemendur skólans, yngri en 18 ára, hafa aðgang af gjaldfrjálsri sálfræðiþjónustu. Til að óska eftir viðtali þarf fyrst að leita til náms- og starfsráðgjafa og fylla út tilvísun. Samþykki forsjáraðila þarf einnig að liggja fyrir. Í framhaldinu er haft samband við nemanda og honum boðinn tími hjá sálfræðingi. Ef tími hjá sálfræðingi rekst á við tíma í skólanum er hægt að óska eftir O – mætingu hjá náms- og starfsráðgjafa.

Nemendur geta leitað til sálfræðings t.d. vegna tilfinningalegra erfiðleika, svo sem kvíða eða þunglyndis, vegna félagslegrar einangrunar og samskiptavanda.

Sálfræðingur skólans er Elsa Kristjánsdóttir

Fréttaflokkar

  • Fréttir
  • Covid-19
  • Stoðþjónusta
  • Tilkynningar