Vörður

Námsmat í FAS byggist á leiðsagnarmati. Nemendur fá endurgjöf tvisvar sinnum á önn á svokölluðum Vörðum (Leiðarljós og Vegvísir). Vörðunum er ætlað að veita nemendum upplýsingar um stöðu þeirra í einstaka áföngum auk þess sem þeir fá tækifæri til að ræða framvindu námsins við kennara sína.

Á vörðum er notast við þriggja stiga skala: Gott – Viðunandi – Óviðunandi, ásamt skriflegum ábendingum frá kennara. Í matinu er notast við flest þekkt mælitæki í skólastarfi, t.d. ígrundun kennarans, munnleg- og skrifleg próf, sjálfsmat, verkefni af ýmsum toga og virkni nemenda í tímum ásamt mætingu í kennslustundir. Endurgjöf kennara á vörðum endurspeglar því ekki eingöngu einkunnir nemandans í viðkomandi áfanga heldur eru fleiri þættir sem liggja til grundvallar vörðumati kennara.

Nemandi sem fær O í tveimur eða fleiri áföngum á vörðunum er kallaður í viðtal til nemendaþjónustunnar, þ.e. umsjónarkennara og/eða námsráðgjafa, að vörðu lokinni.

Verklag fyrir kennara

Kennari

Varða 1 – munnleg og skrifleg varða – kennari ræðir einslega við alla nemendur, skyldumæting er í vörðusamtal – niðurstöður birtar í INNU

Varða 2 – kennari gefur endurgjöf í sínum áföngum – niðurstöður birtar í INNU

Umsjónarkennari

Varða 1 &2 – fær niðurstöður frá kennara í áfanga þar sem nemandi hefur ekki sýnt fram á viðunandi námsárangur*  – hefur hann samband við foreldra/forráðamenn nemenda yngri en 18 ára. Ræðir einslega við nemendur eldri en 18 ára.

 

 

(samþykkt á kennarafundi 8. apríl 2025)

Fréttaflokkar

  • Fréttir
  • Covid-19
  • Stoðþjónusta
  • Tilkynningar