Óflokkað

Önnur lota í VA

Síðasta fimmtudag fóru 11 nemendur í trésmíði í aðra lotu í VA ásamt kennurum. Líkt og í fyrri ferð var gist á heimavistinni og borðað þar. Einnig fengum við að nýta aðstöðuna til að elda og matast á föstudagskvöldi og laugardegi.

Strax á föstudagsmorgni voru nemendur mættir í smíðastofuna og hófust handa. Núna var áhersla á að smíða koll en áður en farið var í ferðina höfðu nemendur byrjað á því verkefni. Flestir komust langt með verkefnið og nemendur tóku einnig með sér heim efni í vinnutröppu sem verður unnið áfram með í Vöruhúsinu.

Líkt og fyrri ferð gekk þessi ljómandi vel. Næsta lota er svo fyrirhuguð í tengslum við Austfirsku ólympíuleikana um miðjan nóvember.

Hér má sjá nokkrar myndir frá lotu 2.