
Skrifstofa
Skrifstofustjóri Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu er Helena Ingvadóttir og hennar netfang er skrifstofa@fas.is.
Almenn erindi til skólans má einnig senda á póstfangið fas@fas.is.
Skrifstofa skólans er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 8:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00. Á föstudögum er opið frá kl. 8:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00. Lokað er í sumarleyfi starfsfólks í sex vikur yfir hásumarið.
Þjónusta skrifstofu:
- Útgáfa vottorða um skólavist, t.d. vegna orlofs, atvinnuleysisbóta eða Tryggingastofnunar.
- Afhending upplýsinga um námsferil, sem eru varðveittar rafrænt í Innu.
- Beiðnir um staðfest afrit námsferla skulu berast skrifstofunni.
- Þýðingar á prófskírteinum eða einkunnum yfir á erlend tungumál gegn greiðslu þýðingargjalds. Beiðnir um þýðingar skulu sendar skrifstofunni.
Upplýsingar um gjaldskrá skólans má finna hér.