Sagan

Þann 1. ágúst 1987 hóf Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu formlega göngu sína. Á fyrsta skólaárinu voru nemendurnir í FAS á 1. og 2. námsári framhaldsskóla, en stefnan hafði strax verið sett hærra, á kennarafundi sama ár var kynnt svar menntamálaráðuneytis við ósk skólayfirvalda um að kenna nemendum á 3. námsári strax þetta skólaár. Ráðuneytið hafnaði ekki hugmyndinni „en leggur til að skólinn festi sig betur í sessi áður en lengra er haldið“ (úr fundargerð). Alls voru 52 nemendur skráðir til náms á þessu fyrsta starfsári.

„Um haustið (1996) gaus Gjálp og mikið hlaup kom í Skeiðará og Gígju. Baráttan gegn niðurskurði skilaði þeim árangri að dregið var verulega úr fyrri áformum og menntamálaráðherra gaf út þá yfirlýsingu í umræðum á Alþingi um málið að hann væri tilbúinn að skoða hvort Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu fengi leyfi til að útskrifa stúdenta” (úr eldri annálum).

Í bréfi dagsettu 10. janúar 1997 var skólanum veitt heimild til að útskrifa stúdenta sem síðan var gert um vorið í fyrsta skiptið í nafni skólans.

Síðan þá hefur skólinn verið í sífelldri þróun, sem fylgir byggðaþróun svæðisins og þeirri þróun sem á sér stað í mennta- og þjóðfélagsmálum á hverjum tíma. Frá skólanum hafa vorið 2024útskrifast 776 nemendur þar af 326 af stúdentsbrautum og 475 aðrir með mismunandi starfsréttindi, þar af 119 úr fjallamennskunámi. Þessar tölur eru frá árunum 2004-2024

Fréttaflokkar

  • Fréttir
  • Covid-19
  • Stoðþjónusta
  • Tilkynningar