
Gildi sýn, hlutverk
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu er framsækinn skóli, skóli sem hefur það að aðalmarkmiði að þjóna nær umhverfi sínu sem best. Þó staðsetningin og tengslin við samfélagið sé okkar höfuð markmið þá leggjum við einnig upp úr því að sinna vel námi án staðsetningar. Gildin okkar eru fjölbreytni, áræðni og sköpun.
Fjölbreytni sem stendur fyrir bæði fjölbreytni í námsvali og fjölbreytta samsetningu nemenda- og kennarahóps.
Áræðni stendur fyrir hvatningu til ungs fólkis sem er við það að öðlast sjálfstæði. Hvatningu og kraft til að vera virkur þáttakandi í eigin lífi hvar svo sem nemendinn er staddur.
Sköpun er einn af grunn þáttum menntunar og menningar í hvaða formi sem er.
Framhaldsskólinn Austur-Skaftafellssýslu sinnir hlutverki menntunar og fræðslu af alúð og nærgætni. Framhaldsskólaárinn eru mikilvægur kafli í þroskaferli einstaklings og það er okkar ósk að skilja eftir hjá okkar nemendum áræðni til að takast á við fjölbreytileika lífsins, sem og að skapa þá framtíð sem þau vilja sjá og vera partur af.