Skólinn

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu starfar samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá 2008. Skólinn starfar undir yfirstjórn menntamálaráðherra. Hlutverk FAS er að starfrækja námsbrautir til stúdentspróf, bjóða upp á starfsnám í samræmi við eftirspurn hverju sinni og að gefa nemendum kost á að ljúka því námi sem þeir skipuleggja sjálfir í samráði við skólann.

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu starfar eftir aðalnámskrá framhaldsskóla, framhaldsskólalögum og öðrum reglugerðum sem fjalla um skólastarf á framhaldsskólastigi.

Fréttaflokkar

  • Fréttir
  • Covid-19
  • Stoðþjónusta
  • Tilkynningar