Umsjónakennarar

Meginmarkmið umsjónar í FAS

Meginmarkmið umsjónarstarfs með nemendum í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) er að stuðla að farsæld þeirra, auka vellíðan í skólanum og draga úr brotthvarfi frá námi. Þetta er gert með því að fylgjast vel með líðan, námsframvindu og skólasókn nemenda. Mikilvægt er að nemendur finni að umsjónarkennari ber umhyggju fyrir þeim, styðji þá í náminu og hafi trú á árangri þeirra. Með markvissu og reglubundnu umsjónarstarfi er leitast við að veita nemendum stuðning, skapa umhyggjusamt námsumhverfi og efla tengsl milli nemenda og skólans.

Hlutverk umsjónarkennara í FAS

Í upphafi skólaárs felur skólameistari kennurum að hafa umsjón með nemendahópi í samvinnu við námsráðgjafa skólans. Umsjónin felur meðal annars í sér:

  • Að fylgjast með skólasókn, námsframvindu og ástundun hvers nemanda í umsjónarhópnum.
  • Að eiga regluleg einstaklingssamtöl við nemendur, ræða viðhorf þeirra, líðan og markmið í náminu.
    • Nemendur eiga að lámarki þrjá fasta fundi með umsjóarkennara yfir önnina.
  • Að koma á framfæri við námsráðgjafa, áfangastjóra eða skólameistara ef grunur vaknar um námsvanda, persónuleg vandamál eða þörf sé á samþættri þjónustu í þágu farsældar barna.
  • Að hafa samskipti við foreldra og forráðamenn ólögráða nemenda varðandi mál sem tengjast skólagöngu þeirra.
  • Að vera til staðar fyrir nemendur sem ráðgjafi og styðja þá í vali á námi og áföngum.
  • Að aðstoða nemendur við að skipuleggja nám sitt, skrá val í Innu og vinna með námsáætlanir í samstarfi við námsráðgjafa og áfangastjóra.
  • Að leiðbeina nemendum um góð vinnubrögð í námi og ábyrgð í skólastarfi.
  • Að vera talsmaður umsjónarnemenda sinna gagnvart stjórnendum skólans.
  • Að miðla upplýsingum frá skólastjórnendum til nemenda í umsjónarhópnum.
  • Að taka virkan þátt í samráðsfundum með námsráðgjafa og áfangastjóra vegna málefna nemendahópsins.
  • Að taka þátt í kynningarfundi fyrir foreldra nýnema sem eru yngri en 18 ára.
  • Að ræða við þá nemendur sem ekki hafa sýnt fram á viðunandi námsárangur á vörðum

Fréttaflokkar

  • Fréttir
  • Covid-19
  • Stoðþjónusta
  • Tilkynningar