Stoðþjónusta

Í stoðþjónustuteymi skólans sitja náms- og starfsráðgjafi, umsjónarkennari starfsbrautar og umsjónarkennari framhaldsskólabrautar. Allir nemendur og forráðamenn þeirra geta haft samband við stoðteymið ef þörf er á auknum stuðningi við nám.

Stoðteymið býður upp á markvissan stuðning í vinnustundum og stendur fyrir námskeiðum um árangursríkar námsaðferðir eftir þörfum.

Nemendur með námsörðugleika og/eða íslensku sem annað tungumál eru sérstaklega hvattir til að mæta í vinnustundir stoðteymisins og nýta sér þjónustu þess.

 

Hægt er að hafa samband við stoðteymi hér:

Fréttaflokkar

  • Fréttir
  • Covid-19
  • Stoðþjónusta
  • Tilkynningar