
Náms- og starfsráðgjafi
Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er að standa vörð um velferð allra nemenda, styðja þá og liðsinna. Hann er einnig málsvari og hagsmunafulltrúi nemenda innan skólans. Náms- og starfsráðgjafi veitir ráðgjöf um ýmis mál sem tengjast námi, náms- og starfsvali og persónulegum högum nemenda.
Það er eðlilegt að þurfa að fást við vandamál, áhyggjur og erfiðleika. Það er sjálfsagt að leita sér upplýsinga, stuðnings og aðstoðar. Nemendur og forráðamenn eru hvattir til að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa ef upp koma vandamál í náminu, persónuleg vandamál, áföll eða annað sem getur haft áhrif á velferð nemenda eða námsframvindu.
Nemendur geta leitað til námsráðgjafa í trúnaði.
Náms- og starfsráðgjafi skólans er Fríður Hilda Hafsteinsdóttir Hægt er að bóka tíma hér, kíkja við á skrifstofu hennar eða senda tölvupóst á fridur@fas.is
Hér fyrir neðan eru dæmi um aðstæður sem getur verið hjálplegt að leita til náms- og starfsráðgjafa.
Náms og starfsráðgjafi miðlar upplýsingum um möguleika og framboð á námi. Hann getur aðstoðað við að skipuleggja skrefin í átt að markmiðið þínu.
Náms- og starfsráðgjafi þekkir vel árangursríka námstækni eins og lestrar og glósutækni. Mismunandi aðferðir henta hverjum og einum og náms- og starfsráðgjafi getur aðstoðað þig við að finna út hvaða leið hentar þér best.
Náms- og starfsráðgjafi getur leiðbeint og aðstoðað við að finna þá leið sem hentar hverjum og einu til að forgangsraða og skipuleggja verkefnin sín.
Náms- og starfsráðgjafi sinnir fræðslu til nemenda með sértæka námsörðugleika. Mikilvægt er að þekkja birtingarmyndir sinnar greiningar og hvaða leiðir gagnast vel til að vinna með þær. Eins lumar hann á ýmsum ráðum og forritum í síma eða tölvur sem nemendur geta nýtt sér til að styðja við lestur, ritun, skipulag, tímastjórnun og margt fleira. Náms- og starfsráðgjafi heldur utan um greiningar nemanda og geta nemendur og forráðamenn þeirra leitað til hans ef óskað er eftir sérúrræðum í námsmati.
Náms- og starfsráðgjafi sinnir einnig persónulegri ráðgjöf og er til taks fyrir nemendur sem glíma við ýmiskonar persónulegar áskoranir, áföll, vanlíðan eða vilja efla sjálfstraust og vinna með styrkleika sína. Ertu með vangaveltur og kynhneigð, ertu að upplifa ofbeldi af einhverju tagi eða áttu í samskiptaerfiðleikum við fjölskyldumeðlimi, vini eða kennara þá gæti verið gott að leita til náms- og starfsráðgjafa. Hann veitir stuðning og speglun og þekkir auk þess leiðir innan heilbrigðis og velferðarkerfisins og getur vísað áfram á viðeigandi stuðning ef þess þarf.