
Skólahjúkrunarfræðingur
Þjónusta skólahjúkrunarfræðings í FAS
Í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu er nemendum boðið upp á þjónustu skólahjúkrunarfræðings samkvæmt samningi milli heilsugæslu og framhaldsskóla. Þjónustan er ætluð til að efla geðheilbrigðisþjónustu við framhaldsskólanema. Hún er hugsuð sem viðbót við þá stuðningsþjónustu sem þegar stendur nemendum til boða innan skólans og er að kostnaðarlausu fyrir nemendur.
Þjónustan er á formi einstaklingsmiðaðrar ráðgjafar hjúkrunarfræðinga, með staðsetningu í skólanum. Áherslan er á að veita vegvísi um heilbrigðiskerfið og bjóða upp á fræðslu og ráðgjöf vegna vægs vanda, svo sem tengds geðheilbrigði, kynheilbrigði, félagslegum vanda og almennu heilbrigði.
Anna Lind Þórhallsdóttir, skólahjúkrunarfræðingur FAS, tekur á móti nemendum á skrifstofu námsráðgjafa, alla mánudaga frá kl. 13:00 - 14:00.
Skólahjúkrunarfræðingurinn veitir meðal annars:
Viðtöl og ráðleggingar um heilbrigði og líðan.
Leiðbeiningar um hvert skal leita innan heilbrigðiskerfisins og ráðgjöf um heilbrigðisþjónustu sem er í boði.
Einstaklingsfræðslu um næringu, svefn, kynheilbrigði og hreyfingu.
Mat á veikindum og meiðslum.
Ekki hika við að líta við – allar spurningar eru mikilvægar og eiga rétt á sér!