Námið

Samkvæmt nýrri námskrá FAS verður boðið upp á nám við skólann á þremur brautum sem lýkur með stúdentsprófi. Þetta eru hug- og félagsvísindabraut, náttúru- og raunvísindabraut og kjörnámsbraut.

Í FAS er einnig boðið upp á framhaldsskólabraut sem lýkur með framhaldskólaprófi.

Einnig er boðið upp á nám á ýmsum starfsnámsbrautum í samstarfi við ellefu aðra framhaldsskóla. Verkefnið kallast Samland. Það framboð ræðst af eftirspurn og er því breytilegt milli ára.

Námsframboð skólans miðast fyrst og fremst við að nemendur geti með eðlilegri námsframvindu lokið stúdentsprófi á þremur árum og framhaldsskólaprófi á tveimur árum.

 

Fréttaflokkar

  • Fréttir
  • Covid-19
  • Stoðþjónusta
  • Tilkynningar