Fréttir af fyrrum nemendum
FAS hóf starfsemi árið 1987 og fyrstu árin voru nemendur útskrifaðir frá Menntaskólanum á Egilsstöðum. Árið 1997 fékk skólinn leyfi frá ráðuneytinu til að útskrifa stúdenta og hefur nú útskrifað nemendur í tæplega þrjá áratugi, bæði af stúdentsbrautum og eins úr ýmiss konar starfsnámi. Það eru fjöldamargir í samfélaginu okkar sem eiga minningar um að hafa farið í FAS og útskrifast þaðan. Á velflestum vinnustöðum í sveitarfélaginu starfar fólk sem undirbjó sig fyrir frekara nám í FAS. Okkur finnst alltaf jafn frábært þegar unga fólkið okkar snýr heim aftur og velur að búa hér.
Við hugsum oft til fyrrverandi nemenda okkar og finnst gaman að heyra hvað er verið að fást við í dag. Margir búa hér, aðrir eru vítt og breitt um landið og einhverjir búa jafnvel erlendis og eru í framhaldsnámi eða í vinnu.
Við ákváðum að taka hús á fyrrverandi nemendum okkar og athuga hvað þau eru að fást við í dag. Að þessu sinni ákváðum við að vera í samstarfi við Eystrahorn. Í blaðinu sem kemur út í dag segja þrír nemendur okkar frá því hvað er verið að fást við í dag. Það eru þau Anna Lára Grétarsdóttir, Birgir Sigurðsson og Sævar Rafn Gunnlaugsson. Við hvetjum ykkur til að lesa hvað þau hafa að segja um FAS.
Það er aldrei að vita nema við höfum samband við fleiri fyrrum nemendur til að athuga hvað er verið að fást við í dag.