Heimildaleit og ritgerðasmíð

Í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu er lögð rík áhersla á að nemendur tileinki sér ábyrg og heiðarleg vinnubrögð í námi. Virðing fyrir heimildum er grundvallaratriði og ritstuldur er með öllu óheimill.

Ritstuldur felur í sér að nemandi nýtir sér hugverk annarra í eigin verkefnum eða ritun án þess að vísa til þeirra með viðurkenndum hætti. Þetta á jafnt við þegar notaðir eru hlutar úr verki sem og þegar verk er tekið í heild sinni. Hugverk geta verið margvísleg, til dæmis bækur, greinar, ritgerðir, önnur textaverk, myndir eða efni í tölvutæku eða öðru formi sem verndað er af höfundarrétti.

Við FAS er stuðst við APA-heimildaskráningarkerfið. Nemendum er bent á eftirfarandi gagnlegar leiðbeiningar um notkun APA:

Mikilvægt er að nemendur leiðrétti stafsetningu og innsláttarvillur í verkefnum sínum. Í gegnum Office 365 - leyfi nemenda er villuleit sem er mikilvægt að nýta sér. Að auki er Skrambi, stafsetningarforrit á vegum Stofnunar Árna Magnússonar, gott hjálpartæki. Annað gagnlegt tól er Málfríður sem er stórgott villuleitarforrit sem lagfærir stafsetningarvillur og gerir athugasemdir við málfar. 

Við heimildanotkun er sérstaklega mikilvægt að meta áreiðanleika heimilda, sérstaklega þeirra sem fengnar eru af netinu eða í gegnum gervigreindarforrit.

Turnitin er notað við FAS til að styðja við góða heimildanotkun og ritvinnslu. Turnitin er hugbúnaður sem nýtist bæði nemendum og kennurum til að greina frumleika texta og rétta heimildanotkun, auk þess sem hann býður upp á verkfæri til að greina efni sem unnið er með aðstoð gervigreindarforrita.

Í Office Word forritinu er einnig mögulegt að skrá heimildir á einfaldan hátt. Hér má finna myndband með leiðbeiningum um hvernig heimildaskráningu má framkvæma í Word.

Fréttaflokkar

  • Fréttir
  • Covid-19
  • Stoðþjónusta
  • Tilkynningar