Tölvujónusta

Í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) er gert ráð fyrir að nemendur hafi með sér fartölvu í allar kennslustundir. Tölvu- og netaðgangur er mikilvægur hluti af náminu, bæði fyrir verkefnavinnu, upplýsingaleit og námsmat í gegnum Námsvef FAS.

Á þessari síðu finnur þú helstu leiðbeiningar um:

  • Tengingu við þráðlaust net í skólanum

  • Aðgang að tölvukerfi FAS og lykilorðamál

  • Notkun á Menntaskýinu og Microsoft Office hugbúnaði

  • Aðgang og nýtingu Innu.

Mikilvægt er að nemendur kynni sér þessar upplýsingar vel. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á eigin tölvum og öryggi þeirra, en skólinn veitir aðgang að nauðsynlegum hugbúnaði og stuðningslausnum. Nánari leiðbeiningar má finna hér fyrir neðan.

Ef nemendur þurfa frekari tækniaðstoð geta þeir sent beiðni um aðstoð með því að fylla út þar til gert eyðublað.

Við hvetjum alla nemendur og forráðamenn til að kynna sér upplýsingarnar vel og nýta sér þann stuðning sem í boði er til að tryggja sem bestan námsárangur.

Þú sérð tvö net ef þú skoðar WIFI hjá þér innan skólans þ.e. FAS-Kennarar og FAS-Nemar.
• FÍV-Kennarar er eingöngu fyrir starfsfólk skólans.
• FÍV-Nemendur er hins vegar fyrir síma og fartölvur í eigu nemenda og þarftu að skrá þig inn með aðgangsorði.

Aðgangsorðið er að finna í Innu undir aðstoð, velur þar nemendur og finnur skjal með heitinu "Lykilorð á þráðlaust net".

Stofna lykilorð

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um hvernig nemendur stofna lykilorð hjá Menntaskýinu

Huliðsgluggi

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um hvernig nemendur opna huliðsglugga í Chrome, Firefox, Edge og Safari

Innskráning í Office 365

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um hvernig nemendur skrá sig inn á Office 365 í fyrsta skiptið. 

Innskráning á Námsvef FAS

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um hvernig nemendur skrá sig inn á Námsvef FAS.

Tveggja þátta auðkenning (MFA)

stundum köllum fjölþáttaauðkenning er notuð til þess að herða öryggi í Office 365.

Innskráning í Innu

Nemendum bíðst sá kostur að tengja saman Innu og Office 365 eftir að hafa skráð sig með íslykili eða rafrænum skilríkjum til að auðvelda innskráningu á innu. Hér er hægt að nálgast leiðbeiningar

Uppsetning á Office 365

Hér er hægt að nálgast leiðbeiningar um hvernig hægt er að setja upp Office 365.

Leiðbeiningar um notkun Teams

Í FAS er notast við Microsoft Teams í tengslum við veffundi. Hér eru leiðbeiningar um helstu atriði tengd Teams h

Fréttaflokkar

  • Fréttir
  • Covid-19
  • Stoðþjónusta
  • Tilkynningar