
Fjarnám í FAS
Mikilvægar upplýsingar
Opið er fyrir skráningu í fjarnám á haustönn 2025 frá 28. mars – 29. ágúst.
Nemendur fá póst frá skólanum með öllum helstu upplýsingum til þess að geta hafið nám.
Nemendur í fjarnámi fá aðgang að Microsoft Office pakkanum hjá skólanum og geta notað hann á meðan þeir eru skráðir í nám við skólann. Hér má finna upplýsingar frá tölvuþjónustu FAS
Skólinn notar samskiptavefinn Moodle sem nefnist Námsvefur og þar eru sett inn verkefni, kennsluáætlanir og fleira sem nemendur þurfa að fylgjast vel með og skila verkefnum þar í gegn. Nauðsynlegt er að fylgjast daglega með þar inni.
Inna er skráningarkerfi framhaldsskóla, þar er hægt að fylgjast með einkunnum og fleiru. Þar þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
Greiðsluseðlar verða sendir út til nemenda og birtast í heimabanka. Brýnt er að greiðsla berist á réttum tíma svo öruggt sé að halda plássi. Greiðsluseðlar nemenda undir 18 ára aldri eru sendir á forráðamenn.
Gjaldið er óafturkræft, en vinsamlega látið vita ef hætt hefur verið við nám svo hægt sé að afskrá greiðsluseðil.
Fjarnám við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu fer að mestu fram á netinu og eru áfangar kenndir í gegnum Námsvef skólans.
Boðið er upp á flesta bóklega áfanga í fjarnámi og geta nemendur lokið íþróttaeiningum með öðrum námsáföngum, ef það hentar þeirra námsbraut.
Fullt nám á önn miðast við 30 einingar og samkvæmt nýrri námskrá samsvarar ein eining 18–24 klukkustunda vinnu.
Fjarnám byggir fyrst og fremst á sjálfsnámi undir leiðsögn kennara. Námið krefst aga og góðrar skipulagningar, bæði af hálfu nemenda og kennara. Þar sem ekki er um hefðbundna kennslustundir að ræða, er sjálfsagi lykilatriði. Mikilvægt er að fylgja vel leiðbeiningum, virða tímamörk og skila verkefnum á réttum tíma. Ef spurningar vakna sem ekki er hægt að finna svör við á Námsvefnum, geta nemendur sent fyrirspurn til kennara. Kennurum ber að svara eigi síðar en næsta virka dag á eftir.
Kennsluhættir í fjarnámi eru fjölbreyttir og geta verið mismunandi milli áfanga. Notast er við ýmis konar kennsluefni – t.d. kennslubækur, stafrænt efni, fyrirlestra, myndbönd, myndir og annað sem hæfir viðfangsefninu. Hver kennari velur þá kennsluaðferð og efni sem best þjónar markmiðum námsins.
Nemendur sækja um fjarnám í gegnum heimasíðu skólans. Kennsla í fjarnámi hefst á sama tíma og önnur kennsla í skólanum, nema annað komi fram í skilaboðum til nemenda.
Greiðsluseðill er sendur í heimabanka nemanda. Ef nemandi er yngri en 18 ára er greiðsluseðill sendur til forráðamanns.
Gjaldskrá fjarnáms:
Fyrir 1 áfanga: 12.000 kr.
Fyrir 2 áfanga: 24.000 kr.
Fyrir 3 áfanga eða fleiri: 39.000 kr.
Í aðdraganda þess að kennsla hefst fá fjarnemar sent upplýsingabréf þar sem fram koma lykilatriði um námið, þar á meðal aðgangsupplýsingar að Námsvefnum.
Á meðan á námi stendur fá fjarnemar aðgang að Microsoft Office-pakkanum í gegnum skólann.
Nemendur skulu kynna sér kennsluáætlun vandlega í upphafi spannar og hafa í huga að fjarnám krefst meiri sjálfstæðis og ábyrgðar en hefðbundið dagskólanám. Einn áfangi á spönn jafngildir um 33% vinnu.
Nemendum ber að fara reglulega, að lágmarki 2–3 sinnum í viku, inn á Námsvefinn, fylgjast með því sem fram fer í áfanganum og virða allar verklagsreglur sem kennari setur, m.a. varðandi verkefnaskil og samskipti.
Ef nemandi lendir í vandræðum með námið eða verkefnaskil ber honum að hafa samband við kennara og óska eftir fresti ef þörf krefur.
Nemendur eiga að láta fjarnámsstjóra vita ef þeir ætla að hætta í áfanga.
Tæknilegar forsendur fyrir fjarnámi
Til að geta tekið þátt í fjarnámi þurfa nemendur að:
hafa daglegan aðgang að nettengdri tölvu
gera sér grein fyrir að fjarnám felur í sér aukna ábyrgð og sjálfstæði í vinnubrögðum
hafa gott vald á íslenskri tungu þar sem meiri hluti náms og námsefni er á íslensku
hafa lágmarkskunnáttu í tölvunotkun, s.s. í ritvinnslu og gerð glærukynninga
kunna að nýta sér vefsíður og vinna með efni á Námsvefnum, þar sem helstu upplýsingar og verkefni eru aðgengileg
Upplýsingar um námsefni og bókalista má finna á heimasíðu skólans hér og einnig á INNU.
Haustönn hefst í ágúst og stendur fram að jólum. Vorönn hefst í janúar og lýkur í lok maí.
Námsmat byggir á símati þar sem nemandi fær reglulegt mat á frammistöðu sinni í þeim þáttum sem skilgreindir eru í kennsluáætlun hvers áfanga.
Öll verkefnaskil og próf fara fram rafrænt. Notast er við LockDown Browser, sem læsir öðrum vefum meðan á prófum stendur, og Turnitin, sem greinir sjálfstæði og uppruna verkefna við yfirferð kennara.
Áfangastjóri: kristjane@fas.is
Fjarnámsstjóri: agnes@fas.is
Náms- og starfsráðgjafi: fridur@fas.is