Farsældarþjónusta

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna voru samþykkt af Alþingi 22. júní 2021. Í lögunum kemur fram að nemendur undir 18 ára aldri og fjölskyldur þeirra geti óskað eftir stuðningi tengiliðs sem veitir upplýsingar og leiðbeiningar um sérhæfða þjónustu innan og utan skólans. Markmiðið og tilgangur þessa er að auka samstarf þjónustuaðila í þágu farsældar barna og þannig tryggja að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að þjónustu við hæfi. 

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu um farsæld barna. Þar má meðal annars finna stutt myndbönd sem útskýra farsældarlögin. 

Til að óska eftir þjónustu þurfa forráðamenn að fylla út eyðublað með umsókn sem þarf að berast til tengiliðs innan skólans. Einnig er hægt að leita til tengiliðar til að fá nánari upplýsingar um farsældarþjónustu án þess að fylla út umsókn.

Tengiliður vegna farsældarþjónustu

Tengiliður hefur hagsmuni ungmennis að leiðarljósi í samstarfi og samráði við foreldra og ungmenni.

Hlutverk tengiliðar er að:

  • Veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar ungmennis.
  • Aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum ungmennis.
  • Skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar ungmennis.
  • Koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra þjónustu í þágu farsældar ungmennis.
  • Taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á.

Tengiliður í FAS er Fríður Hilda Hafsteinsdóttir, náms- og starfsráðgjafi. Hægt er að bóka samtal við hana í gegnum tölvupóst fridur@fas.is eða hér Bókanir - - Outlook

 

Umsóknareyðublöð

Fréttaflokkar

  • Fréttir
  • Covid-19
  • Stoðþjónusta
  • Tilkynningar