Ferð í VA á morgun, föstudag fellur niður
Fyrirhuguð ferð í VA á morgun fellur niður vegna slæmrar veðurspár. Spáð er miklum vindi og varhugaverðar aðstæður gætu skapast bæði í Hvalnesskriðum og Hamarsfirði. Því er betra heima setið en af stað farið í aðstæður sem þessar. Við stefnum á ferðina austur síðar á skólaárinu.
Það verður því hefðbundinn skóladagur á morgun. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá 8:30.