Hvaða framboð ætlar þú að styðja?
Það hefur aldeilis verið margt um manninn á Nýtorgi í dag. Hingað eru mættir fulltrúar frá öllum framboðunum fjórum sem bjóða fram krafta sína í sveitarstjórnarkosningunum annan laugardag, 16. maí. Nemendur úr 8. – 10. bekk grunnskólans eru hingað mættir auk nemenda FAS. Tilgangurinn er að kynna stefnur og áherslur framboðanna í komandi kosningum. Og að sjálfsögðu skiptir það unga fólkið okkar miklu að vita eitthvað um það.
Í upphafi var boðið upp á pizzur. Því næst flutti fulltrúi frá hverju framboði stutt ávarp þar sem helstu áherslur voru kynntar. Frambjóðendum hafði verði skipt niður á borð og gátu nemendur sest hjá frambjóðendum til að ræða það sem þeim lá á hjarta eða til að spyrja spurninga. Tímamörk hjá hverjum frambjóðenda voru 4 mínútur en þá þurfti að skipta og ræða við annan frambjóðanda.
Það er ungmennaráð sem skipulagði þennan viðburð. Í næstu viku gefst svo þessum nemendum tækifæri til að taka þátt í skuggakosningum þar sem þeir geta valið sitt framboð. Úrslit úr skuggakosningum mun liggja fyrir þegar úrslit sveitarstjórnarkosninganna hafa verið kunngjörð. Að sjálfsögðu hvetjum við alla til að kjósa og hafa þar með áhrif. Bæði í skuggakosningunum og sveitarstjórnarkosningunum sjálfum.