Frábær ferð á Norðfjörð
Síðastliðinn föstudag lögðu 13 krakkar af stað í skíðaferðalag og var sú ferð farin á vegum foreldrafélags FAS. Með hópnum voru Margrét kennari í FAS og maðurinn hennar Jón Birkir. Haldið var í Oddsskarð þar sem geggjað veður tók á móti hópnum. Sumir voru að fara í fyrsta skipti á skíði en aðrir voru þaulvanir. Fararstjórar hópsins hjálpuðu þeim sem voru að stíga sín fyrstu spor og var frábært að hafa þau Margréti og Jón Birki með.
Eftir að hafa skíðað í nokkra tíma var haldið í náttstað á Norðfirði en hópurinn gisti á hótel Hildibrandi. Þar hitti Guðjón skólameistari hópinn en hann hafði átt erindi í VA. Um kvöldið snæddi hópurinn pizzu, sumir skelltu sér í ræktina en meðan aðrir höfðu það huggulegt í íbúðunum.
Laugardagurinn var rigningardagur svo ekki var hægt að halda á skíði en í staðinn var haldið í sund og eftir það í VA þar sem hópurinn fékk kynningu á skólanum og fyrirtækjum á svæðinu. Þetta var skemmtileg og lífleg kynning. Eftir kynninguna var haldið aftur heim.
Foreldrafélagið vill þakka Fúsa Ásbjörns fyrir að sjá um keyra hópinn, Möggu og Jóni fyrir að koma með og fyrir hjálpina. FAS fyrir styrkinn og Guðjóni fyrir að vera frábær gaur eins og unglingarnir segja. Síðast en ekki síst viljum við þakka krökkunum fyrir að vera skemmtileg og til fyrirmyndar í alla staði!
Hér má sjá nokkrar myndir úr ferðinni.