Óflokkað

Útskrift í fjallanámi FAS

Í dag fór fram útskrift í fjallamennskunámi FAS. Núna útskrifast tuttugu og einn af fyrsta ári og fjórir af öðru ári.

Því miður er þetta síðasta útskrift í þessu námi frá FAS þar sem skólinn hefur ekki fjárhagslegt bolmagn til að halda náminu áfram.

Námskrá fyrir námið er fjölbreytt og miðar að leiðsögn í ævintýraferðaþjónustu. Námið fer að mestu fram utandyra og í raunverulegum aðstæðum á fjöllum og jöklum. Allt hefur gengið ljómandi vel í vetur, allt skipulag er til fyrirmyndar og kennararnir frábærir og eldhugar í sínu starfi.

Með þeim sem útskrifast í dag hafa um 120 nemendur lokið námi í fjallamennsku frá FAS. Samkvæmt könnun starfa um 80% af útskrifuðum nemendum í dag við leiðsögn eða önnur störf tengd ferðaþjónustu.

Þetta nám er einstakt og sérsniðið að þörfum íslenskrar ævintýraferðaþjónustu og hefur verið frá árinu 2012 sérstaða og stolt skólans. Það er okkur því afar þungbært að nú sé komið að leiðarlokum.

Við óskum útskriftarnemendum í dag hjartanlega til hamingju með áfangann og óskum þeim velfarnaðar í starfi.