Óflokkað

Útskrift frá FAS

Í dag fór fram útskrift frá FAS. Að þessu sinni útskrifast 19 stúdentar og einn nemandi af starfsbraut.

Af hug- og félagsvísindabraut útskrifast; Andrea Sól Sigurðardóttir, Bára Mjöll Ragnheiðardóttir, Isabella Tigist Felekesdóttir og Sandra Magnúsdóttir.

Af kjörnámsbraut útskrifast; Agnar Jökull Imsland Arason, Birna Rós Valdimarsdóttir, Kolbrún Vignisdóttir, Kolbrún Völkudóttir og Pálmi Freyr Gunnarsson.

Af kjörnámsbraut, íþróttasviði útskrifast; Birkir Snær Ingólfsson, Nína Ingibjörg Einarsdóttir og Oskar Karol Jarosz.

Af kjörnámsbraut, listasviði útskrifast; Alexandra Hernandez, Brynja Lind Óskarsdóttir, Lilja Dögg Einarsdóttir, Lilja Rún Kristjánsdóttir, Magndís Lóa Aðalsteinsdóttir og Margrét María Aradóttir.

Af náttúru- og raunvísindabraut útskrifast Helga Kristey Ásgeirsdóttir.

Þá útskrifast Zahidullah Ibrahimkhiel af starfsbraut.

Bestum árangri á stúdentprófi að þessu sinn ná þær Isabella Tigist Felekesdóttir og Margrét María Aradóttir en þær eru með sömu meðaleinkunn.

Starfsfólk FAS óskar öllum útskriftarnemendum til hamingju með áfangann og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.