Umhverfisdagur Nýheima

Það er vel við hæfi á síðasta degi vetrar að taka til hendinni og hreinsa og tína drasl sem hefur fallið til í vetur. Eins og svo oft áður efndu íbúar Nýheima til hreinsunardags þar sem allir sem geta leggja hönd á plóg. Það er búið að tína rusl, sópa, hreinsa á milli gangstéttarhellna og reita illgresi. Ekki spillir fyrir að veðrið er ljómandi gott og hentar vel til útiveru.
Eftir gott hreinsunarstarf var öllum boðið upp á grillaða hamborga og þeim voru gerð góð skil.
Við erum ánægð með afrakstur vinnunnar getum við tekið vel á móti sumardeginum fyrsta sem er á morgun. Gleðilegt sumar öll og takk fyrir veturinn.
- Margar hendur vinna létt verk.
- Margar hendur vinna létt verk.
- Margar hendur vinna létt verk.
- Barði í góðum gír.
- Margar hendur vinna létt verk.
- Margar hendur vinna létt verk.
- Margar hendur vinna létt verk.
- Þessi litla planta hefur ákveðið að hér ætli hún að búa.
- Brosað framan í sólina.
- Bela und Mauritz hafa verið í starfsþjálfun á Íslandi síðustu 10 daga.
- Yfirgrillmeistarinn….
- … og aðstoðarfólk hans.
- Hamborgararnir runnu ljúflega niður.