Óflokkað

Tækniaðstoð í Ekrunni

Einn er sá áfangi í FAS sem heitir „Inngangur að framhaldsskóla“ og er ætlaður nýnemum. Sá áfangi er kenndur bæði á haustönn og vorönn. Á fyrri önninni er áherslan lögð á að koma nemendum inn í kerfin og þeim kennt að halda utan um gögnin sín á skipulegan hátt. Það er töluverð breyting að fara úr grunnskóla yfir í framhaldsskóla og mikilvægt að veita sem besta leiðsögn í því sem framundan er.

Á vorönninni heldur áfanginn áfram en þá er einnig verið að vinna með alls kyns samfélagslega þjónustu sem er veitt í sveitarfélaginu. Þannig fá nemendur að kynnast starfsemi AFLs stéttarfélags og störfum lögreglunnar svo eitthvað sé upp talið. Ásamt því að fá kynningar í skólann er farið í heimsóknir í ýmsar stofnanir.

Síðasta mánudag fóru nemendur í heimsókn í Ekruna og voru með því að svara kalli Félags eldri borgara um tækniaðstoð. Þeir eldri borgarar sem vildu mættu í Ekruna með tækin sín og okkar nemendur aðstoðuðu eftir þörfum. Báðir hópar voru ánægðir með heimsóknina og nemendur FAS fara aftur í heimsókn mánudaginn 23. febrúar klukkan 10:30. Við hvetjum alla þá sem vilja nýta sér tækniaðstoð unga fólksins að koma þá í Ekruna.

Hér má sjá nokkar myndir frá heimsókninni á mánudag.