Sumarfrí og upphaf haustannar
Þessa dagana er störfum skólaársins að ljúka og starfsfólk á leið í sumarfrí. Skrifstofa skólans lokar föstudaginn 19. júní og opnar aftur fimmtudaginn 6. ágúst.
Það er okkur mikið gleðiefni að aðsókn í skólann á komandi haustönn er góð.
Skólinn verður settur þriðjudaginn 18. ágúst og kennsla hefst þann 19. ágúst.
Ef einhverjir eru að velta fyrir sér að fara í nám í haust er hægt að skoða upplýsingar um námsframboð á heimasíðu skólans og þar er einnig hægt að sækja um nám. Það er hægt að hafa samband við Guðjón Ragnar skólameistara í sumarfríinu ef erindið er brýnt (gudjon@fas.is og 860 04 14).
Starfsfólk FAS sendir bestu óskir um gott og gefandi sumar.