Starfsþróun kennara í Reykjavík
Eftir hádegi á morgun, fimmtudag ætlar starfsfólk FAS að leggja land undir fót og halda á höfuðborgarsvæðið. Ástæðan fyrir ferðinni er sú að föstudaginn 27. febrúar verður haldinn starfsþróunardagur starfsmanna í framhaldsskólum. Starfsfólk úr 26 framhaldsskólum á landinu ætlar að taka þátt og fá fræðslu af ýmsu tagi. Þrettán framhaldsskólar á höfuðborgarsvæðinu hafa skipt kennslugreinum á milli sín og því mun hópurinn úr FAS dreifast víða. Það er alltaf gott að fara og hitta þá sem eru að fást við svipuð verkefni og líka gaman að sjá og kynnast öðrum skólum.
Vegna þessarar ferðar fellur niður kennsla í FAS eftir hádegi á morgun, fimmtudag og eins á föstudag.